Vilja einbeita sér að fjórfalt stærri olíulind en fundist hafi við Noreg Kristján Már Unnarsson skrifar 4. janúar 2017 20:00
Kanadíska olíufélagið Ithaca hefur skilað inn sérleyfi sínu á Drekasvæðinu. Stjórnarformaður Eykons segir menn vilja einbeita sér að sérleyfi kínverska félagsins CNOOC, sem gefi fyrirheit um fjórfalt stærri olíulind en fundist hafi við Noreg og Bretland. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2. Svo vill til að það eru nákvæmlega fjögur ár í dag frá því olíuleitin hófst formlega þegar fyrstu sérleyfunum var úthlutað í Ráðherrabústaðnum. Það var í tíð ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna sem fyrstu tvö leyfin voru afhent en ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks var tekin við þegar þriðja sérleyfinu var úthlutað. Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri, í miðið, afhenti fyrstu leyfin þann 4. janúar 2013 að viðstöddum Steingrími J. Sigfússyni atvinnuvegaráðherra og Ola Borten Moe olíumálaráðherra Noregs.Vísir/Stefán. En síðan hefur saxast á hóp sérleyfishafanna. Hópur undir forystu Faroe Petroleum skilaði inn sínu leyfi fyrir tveimur árum og í dag tilkynnti Orkustofnun að Ithaca-hópurinn hefði einnig lagt inn sitt leyfi. Þar með stendur hópur undir forystu kínverska félagsins CNOOC einn eftir. Í tilkynningu Orkustofnunar kemur fram að túlkun gagna, sem rannsóknarskipið Harrier Explorer aflaði fyrir Ithaca á Drekasvæðinu síðastliðið sumar, hafi leitt til þeirrar ályktunar að ekki væri ástæða til að halda áfram olíuleitinni. Rannsóknaskipið Harrier Explorer á ytri höfninni í Reykjavík síðastliðið sumar áður en það hélt á Drekasvæðið á vegum Ithaca-hópsins.Stöð 2/Arnar Halldórsson. Íslenska félagið Eykon er aðili að leyfinu sem skilað var í dag en einnig að eina leyfinu sem nú er eftir, og ráðamenn þessu eru ekki á því að þetta boði einhver endalok. Stjórnarformaður Eykons, Heiðar Guðjónsson, segir félagið hafa stutt það að Ithaca-leyfinu yrði skilað inn enda sé CNOOC-leyfið mun vænlegra. Ithaca-leyfið, sem skilað var í dag, er nyrst á Drekasvæðinu. CNOOC-leyfið er nær Íslandi og mun stærra.Grafík/Tótla I. Sæmundsdóttir. „Við erum í raun og veru að viðurkenna það að við erum ekki að fara að bora á báðum stöðunum. Við ætlum að bora á öðrum staðnum og þá veljum við þann stað sem er meira lofandi og það er CNOOC-leyfið,“ segir Heiðar. „Þar erum við með gríðarstóra olíugildru sem er áttahundruð ferkílómetrar, - í raun og veru fjórum sinnum stærri heldur en nokkur olíulind eða gaslind sem hefur fundist í kringum Noreg eða Bretland. Það er auðvitað svæði sem við viljum einbeita okkur að.“ Skip á vegum CNOOC-hópsins, Oceanic Challenger, rannsakaði Drekasvæðið haustið 2015. Heiðar segir að frekari mælingar á svæðinu verði boðnar út fyrir lok þessa árs. Rannsóknarskipið sem fór á Drekasvæðið haustið 2015 á vegum CNOOC-hópsins.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson. „Svo verða mjög umfangsmiklar mælingar í gangi 2018 og við stefnum ótrauðir á að bora þar 2020,“ segir stjórnarformaður Eykons.
Olíuleit á Drekasvæði Tengdar fréttir Túrbó-Þórður opnar á íslenskt olíuævintýri Nýr olíumálaráðherra Noregs gefur sterklega til kynna í blaðaviðtali í dag að norska ríkisstjórnin ætli að auka þátttöku sína í olíuleit á Drekasvæðinu. 5. nóvember 2013 18:30 Þessu skipi er ætlað að finna olíulindir á Drekasvæðinu Olíuleitarskip hélt frá Reykjavík í dag áleiðis á Drekasvæðið til að safna gögnum fyrir kanadíska félagið Ithaca. 12. júní 2016 20:00 Reyðarfjörður valinn sem olíubær Íslands Eykon Energy hefur valið Reyðarfjörð sem þjónustumiðstöð fyrir bæði olíuleit og olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar segir þetta skapa gríðarleg tækifæri. 11. maí 2014 19:15 Kanadískt félag yfirtekur sérleyfi á Drekasvæðinu Kanadískt olíufélag, Íþaka, er orðinn rétthafi og rekstraraðili annars af tveimur olíuleitarleyfunum á íslenska Drekasvæðinu eftir að það yfirtók breska olíufélagið Valiant. Ekki eru nema fjórir mánuðir liðnir frá því að íslensk stjórnvöld úthlutuðu fyrstu tveimur sérleyfunum til rannsókna og vinnslu olíu á Drekasvæðinu. Fulltrúi breska félagsins Valiant tók við öðru leyfinu sem rekstraraðili með 56,25% prósenta hlut en íslenska félagið Kolvetni, með 18,75%, og norska ríkisolíufélagið Petoro, með 25%, eru einnig aðilar að leyfinu. Nú hefur Ithaca Energy tekið yfir hlutverk Valiant sem rekstraraðili leyfisins en til þess þurfti samþykki Orkustofnunar. Kanadíska félagið gerði eigendum Valiant 36 milljarða króna yfirtökutilboð sem fallist var á og var endanlega gengið frá yfirtöku Íþöku á Valiant fyrir um tveimur vikum. Íþaka var stofnað í Alberta í Kanada árið 2004 og er skráð í kauphöllunum í Toronto og London. Meginstarfsemi félagsins felst í olíu- og gasvinnslu í Norðursjó þar sem félagið kemur að rekstri nokkurra svæða. Það stundar einnig olíuleit og olíuboranir. Það telst ekki stórt í olíuheiminum en velta þess á síðasta ári nam um 20 milljörðum króna. 2. maí 2013 18:45 "Drekasvæðið mun betra en við þorðum að vona“ Sérleyfishópur undir forystu kínverska ríkisolíufélagsins CNOOC stefnir á fyrstu boranir árið 2020. 11. október 2016 20:00 Tökum þátt því við höfum trú á Jan Mayen-svæðinu Olíumálaráðherra Noregs, sem sagður er ætla að búa til íslenskt olíuævintýri, segir að rannsóknir á Jan Mayen-svæðinu verði mun erfiðari en á olíusvæðum Noregs. 13. nóvember 2014 20:15 Ný greining lýsir bjartsýni um stórar olíulindir á Drekasvæði Kínverska ríkisolíufélagið CNOOC áformar að hefja boranir eftir fjögur ár. 25. apríl 2016 18:45 Er það von um "elefant" sem lokkar á Drekann? Olíumálaráðherra Noregs, Ola Borten Moe, er í viðtali við Aftenbladet í Stavanger spurður um hvort hann telji að "elefant“ sé á Drekasvæðinu. Hugtakið "elefant“, eða fíll, er það sem norski olíugeirinn notar um risalindir, eftir stærsta landdýri jarðar, en það eru olíusvæði eins og Ekofisk, Statfjord, Troll, Gullfaks og Mjallhvít. Hugtakið "flóðhestur“ er svo notað um lindir af næstu stærð þar fyrir neðan. 5. janúar 2013 11:19 Rannsóknarleiðangri á Drekasvæðið lokið Olíurannsóknarskipið Harrier Explorer er nú á leið til Stavanger eftir tveggja vikna leiðangur á Jan Mayen-hryggnum. 29. júní 2016 17:00 Vísbendingar um stórar olíulindir hvetja til leitar á Drekasvæðinu Dýrasta olíuleit við Ísland til þessa á vegum sérleyfishafa hefst í kvöld þegar rannsóknarleiðangur tveggja skipa heldur á Drekasvæðið frá Austfjörðum. 2. september 2015 19:45 Milljarðar í olíuleit á Drekanum Fyrirtækin sem hafa leyfi til olíuleitar á Drekasvæðinu hafa þegar varið um þremur milljörðum króna til rannsókna. Í desember liggja fyrir niðurstöður mælinga beggja leyfishafa og framhald rannsókna skýrist. 1. desember 2016 07:00 Mest lesið „Þau samtöl eru oft mjög erfið og jafnvel særandi fyrir umsækjanda“ Atvinnulíf Seðlabankinn lækkar vextina um 50 punkta Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja ákvörðun peningastefnunefndar Viðskipti innlent Sagðir ætla að hafna samruna við Honda Viðskipti erlent „Í eitt skipti hringdum við í fréttaskot DV því fyrir það fengum við pening!“ Atvinnulíf Slippfélagið eflir þjónustu með gervigreind Samstarf Fara í steininn ef þeir punga ekki út tveimur milljörðum innan mánaðar Viðskipti innlent Neytendastofa hjólar í hlaupara Neytendur Eyrir skuldlaus og með 62 milljarða hlut í JBT Marel Viðskipti innlent Kjarninn farinn úr Heimildinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skagi skráð sem formlegt nafn samstæðunnar Bein útsending: Rökstyðja ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankinn lækkar vextina um 50 punkta Anna nýr sjóðstjóri hjá SIV eignastýringu Tugmilljarða hagsmunir í húfi Eyrir skuldlaus og með 62 milljarða hlut í JBT Marel Kjarninn farinn úr Heimildinni Frá Sjálfstæðisflokknum til Viðskiptaráðs Gísli Rafn til Rauða krossins Eiga von á um 10 þúsund gestum Fara í steininn ef þeir punga ekki út tveimur milljörðum innan mánaðar Jarðefnaeldsneytisbílar um fimmtungur nýskráðra fólksbíla Ráðin til fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka Rafrettukóngur og Drekaeigandi sektaðir um 1,1 milljarð hvor 22 sagt upp í einu hópuppsögn janúarmánaðar Heimsfræg bangsaverksmiðja opnuð í Smáralind 40 prósent ódýrara að leigja af óhagnaðardrifnum félögum Vænta þess að eigendur hússins leysi málið Milla ráðin rekstrarstjóri hjá Ólafi Darra og félögum Leggja til lagabreytingu sem leysir af penna og pappír Kolefnisförgunarstöð geti skapað Ölfusi störf og tekjur Vænta 50 punkta lækkunar en telja 25 punkta líklega Birgir hættir hjá Skaga Valdimar Sveinsson hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 37,5 milljarðar í hagnað og nítján í arð Heildarfjöldi farþega 4,7 milljónir í fyrra Spá 50 punkta lækkun stýrivaxta Átján tilnefningar til UT-verðlauna Skýs Bein útsending: Fjármálaþjónusta framtíðarinnar Rannveig kjörin heiðursfélagi Sjá meira
Túrbó-Þórður opnar á íslenskt olíuævintýri Nýr olíumálaráðherra Noregs gefur sterklega til kynna í blaðaviðtali í dag að norska ríkisstjórnin ætli að auka þátttöku sína í olíuleit á Drekasvæðinu. 5. nóvember 2013 18:30
Þessu skipi er ætlað að finna olíulindir á Drekasvæðinu Olíuleitarskip hélt frá Reykjavík í dag áleiðis á Drekasvæðið til að safna gögnum fyrir kanadíska félagið Ithaca. 12. júní 2016 20:00
Reyðarfjörður valinn sem olíubær Íslands Eykon Energy hefur valið Reyðarfjörð sem þjónustumiðstöð fyrir bæði olíuleit og olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar segir þetta skapa gríðarleg tækifæri. 11. maí 2014 19:15
Kanadískt félag yfirtekur sérleyfi á Drekasvæðinu Kanadískt olíufélag, Íþaka, er orðinn rétthafi og rekstraraðili annars af tveimur olíuleitarleyfunum á íslenska Drekasvæðinu eftir að það yfirtók breska olíufélagið Valiant. Ekki eru nema fjórir mánuðir liðnir frá því að íslensk stjórnvöld úthlutuðu fyrstu tveimur sérleyfunum til rannsókna og vinnslu olíu á Drekasvæðinu. Fulltrúi breska félagsins Valiant tók við öðru leyfinu sem rekstraraðili með 56,25% prósenta hlut en íslenska félagið Kolvetni, með 18,75%, og norska ríkisolíufélagið Petoro, með 25%, eru einnig aðilar að leyfinu. Nú hefur Ithaca Energy tekið yfir hlutverk Valiant sem rekstraraðili leyfisins en til þess þurfti samþykki Orkustofnunar. Kanadíska félagið gerði eigendum Valiant 36 milljarða króna yfirtökutilboð sem fallist var á og var endanlega gengið frá yfirtöku Íþöku á Valiant fyrir um tveimur vikum. Íþaka var stofnað í Alberta í Kanada árið 2004 og er skráð í kauphöllunum í Toronto og London. Meginstarfsemi félagsins felst í olíu- og gasvinnslu í Norðursjó þar sem félagið kemur að rekstri nokkurra svæða. Það stundar einnig olíuleit og olíuboranir. Það telst ekki stórt í olíuheiminum en velta þess á síðasta ári nam um 20 milljörðum króna. 2. maí 2013 18:45
"Drekasvæðið mun betra en við þorðum að vona“ Sérleyfishópur undir forystu kínverska ríkisolíufélagsins CNOOC stefnir á fyrstu boranir árið 2020. 11. október 2016 20:00
Tökum þátt því við höfum trú á Jan Mayen-svæðinu Olíumálaráðherra Noregs, sem sagður er ætla að búa til íslenskt olíuævintýri, segir að rannsóknir á Jan Mayen-svæðinu verði mun erfiðari en á olíusvæðum Noregs. 13. nóvember 2014 20:15
Ný greining lýsir bjartsýni um stórar olíulindir á Drekasvæði Kínverska ríkisolíufélagið CNOOC áformar að hefja boranir eftir fjögur ár. 25. apríl 2016 18:45
Er það von um "elefant" sem lokkar á Drekann? Olíumálaráðherra Noregs, Ola Borten Moe, er í viðtali við Aftenbladet í Stavanger spurður um hvort hann telji að "elefant“ sé á Drekasvæðinu. Hugtakið "elefant“, eða fíll, er það sem norski olíugeirinn notar um risalindir, eftir stærsta landdýri jarðar, en það eru olíusvæði eins og Ekofisk, Statfjord, Troll, Gullfaks og Mjallhvít. Hugtakið "flóðhestur“ er svo notað um lindir af næstu stærð þar fyrir neðan. 5. janúar 2013 11:19
Rannsóknarleiðangri á Drekasvæðið lokið Olíurannsóknarskipið Harrier Explorer er nú á leið til Stavanger eftir tveggja vikna leiðangur á Jan Mayen-hryggnum. 29. júní 2016 17:00
Vísbendingar um stórar olíulindir hvetja til leitar á Drekasvæðinu Dýrasta olíuleit við Ísland til þessa á vegum sérleyfishafa hefst í kvöld þegar rannsóknarleiðangur tveggja skipa heldur á Drekasvæðið frá Austfjörðum. 2. september 2015 19:45
Milljarðar í olíuleit á Drekanum Fyrirtækin sem hafa leyfi til olíuleitar á Drekasvæðinu hafa þegar varið um þremur milljörðum króna til rannsókna. Í desember liggja fyrir niðurstöður mælinga beggja leyfishafa og framhald rannsókna skýrist. 1. desember 2016 07:00