Heppni Valsmanna eða óheppni Haukanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. febrúar 2017 13:00 Vísir/Vilhelm
Haukar og Valsmenn eru með karlaliðin sín í undanúrslitum bikarsins í handbolta í Laugardalshöllinni eins og undanfarin ár en enn á ný er lukkan með Val en Haukum þegar kemur að niðurröðun leikjanna. Undanúrslitaleikirnir fara fram klukkan 17.15 og 20.00 kvöldið fyrir úrslitaleikinn sem fer síðan fram daginn eftir klukkan 16.00. Þarna er mikill munur á. Liðið sem vinnur fyrri leikinn fær um sautján klukkutíma hvíld fyrir úrslitaleikinn en sigurvegari seinni úrslitaleiksins spilar aftur eftir aðeins fjórtán klukkutíma. Valsmenn eru þriðja árið í röð að spila leikinn klukkan 17.00 en Haukarnir þurfa í þriðja sinn á fjórum árum að klára undanúrslitaleik sinn rétt rúmlega hálfum sólarhring áður en verður flautað til leiks í bikarúrslitaleiknum. Ein skiptið sem Haukarnir hafa spilað fyrri leikinn var einmitt í fyrra þegar þeir mættu hinum heppnu Valsmönnum í undanúrslitum. Haukarnir hafa tapað í undanúrslitum undanfarin tvö ár, annar leikurinn fór fram klukkan 17.15 en hinn klukkan 20.00. Þegar þeir urðu síðast bikarmeistarar árið 2014 þá spiluðu þeir klukkan 20.00 í undanúrslitum. Þeir hafa því unnið bikarinn þrátt fyrir að fá aðeins fjórtán tíma hvíld á milli leikja. Þetta er fimmta árið í röð sem undanúrslitaleikir og bikarúrslitaleikurinn fer fram um sömu helgi í handboltanum. Stelpurnar spila undanúrslitaleik sinn á fimmtudagskvöldinu og því skiptir tímasetning undanúrslitaleikja þeirra ekki eins miklu máli.Leiktími karlaliðs Valsmanna á bikarúrslitahelgum handboltans 2017 - Klukkan 17.15 (???) 2016 - Klukkan 17.15 (Sigur) 2015 - Klukkan 17.15 (Tap) 2014 - Ekki með 2013 - Ekki meðLeiktími karlalið Hauka á bikarúrslitahelgum handboltans 2017 - Klukkan 19.30 (???) 2016 - Klukkan 17.15 (Tap) 2015 - Klukkan 20.00 (Tap) 2014 - Klukkan 20.00 (Sigur) 2013 - Ekki með
Olís-deild karla Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira