Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - FH 30-21 | FH-ingar fengu skell í Eyjum Gabríel Sighvatsson í Eyjum skrifar 9. mars 2017 21:30 Það er mikið undir hjá Kára Kristjáni og félögum í ÍBV í kvöld. vísir/eyþór
Eyjamenn blésu í herlúðranna og sendu sterk skilaboð til annarra liða í Olís-deildinni með öruggum níu marka sigri á FH í Olís-deild karla en leiknum lauk með 30-21 sigri Eyjamanna í Eyjum. Ákveðið var að spilað yrði í nýja salnum aftur til að fá fleiri áhorfendur á leikinn og það má segja að það heppnaðist fullkomlega. Allt var troðið og stemningin var mögnuð sem hjálpaði Eyjamönnum klárlega þegar á hólminn var komið. Bæði liðin fóru með gott veganesti inn í leikinn, sigrar í síðustu umferð og í raun voru liðin bæði taplaus á árinu 2017. Það var ekki að sjá að liðin væru svona jöfn í deildinni því lokatölur voru 30-21 fyrir heimamenn sem gjörsigruðu Hafnfirðingana. Fyrri hálfleikur var gríðarlega jafn og spennandi. FH byrjaði betur og komst í þriggja marka forystu sem ÍBV sneri svo við. Það fór svo að Eyjamenn skoruðu flautumark og leiddu því 14-13 í hálfleik. Í seinni hálfleik breyttist allt. ÍBV stakk gestina af og virkuðu þeir kraftlausir. Vörnin og markvarslan hjá Eyjamönnum var geggjuð en FH skoraði einungis 8 mörk í seinni hálfleik. Stephen Nielsen átti stjörnuleik og var með 25 varin skot í leiknum. Theodór var eins og oft áður markahæstur með 8 mörk. Hjá FH náði enginn sér á strik í dag. Vörnin fór út um þúfur í síðari hálfleik og markvarslan þar með. Það sem var undravert við varnarleikinn hjá þeim var hinsvegar sú staðreynd að liðið fékk ekki á sig neina tveggja mínútna brottvísun. Næstu leikir liðanna eru gegn liðum í botnbaráttu, ÍBV tekur á móti Stjörnunni eftir viku og FH fær Fram í heimsókn. Arnar: Erum að taka tröppurnar upp á við Arnar Pétursson var heldur betur ánægður með sína menn að leikslokum en ÍBV er núna eina liðið sem er enn ósigrað á þessu ári. „Ég er mjög ánægður með leikinn í dag og þær framfarir sem eru í gangi hjá okkur. Við erum að taka tröppurnar eins og við viljum og erum að bæta okkur leik eftir leik.“ Í dag var ákveðið að spila í stóra salnum en undanfarið hefur gamli salurinn verið notaður meira þar sem dúkurinn í hinum salnum er orðinn ansi slakur. „Já, við vitum að við eigum frábæra áhorfendur og þeir vilja vera í stóra salnum. Það er vika í næsta leik þannig að við ákváðum að gefa þessu séns, að menn fái tíma til að jafna sig eftir dúkinn sem er allavega ekki góður og það skilaði sér í dag.“ Varnarvinna Eyjamanna var mögnuð í dag og FH-ingar skoruðu aðeins 8 mörk í seinni hálfleik. „Maggi (Stefánsson) og Sindri (Haraldsson) voru frábærir, öll varnarvinnan og markvarslan var frábær. Sindri og Maggi eru stórkostlegir varnarmenn og að mínu mati þeir bestu í deildinni, þeir sýndu það hérna í dag og þeir eru okkur gríðarlega mikilvægir. Maggi var með niðurgang í tvo daga og kemur svo og klárar þennan leik,“ sagði Arnar en það var smá flensa að hrjá suma í hópnum fyrir leik. Stephen Nielsen var annar maður sem stóð sig frábærlega, var með 25 varða bolta í leiknum. „Stephen er mikilvægur í hópnum, í seinasta leik kom Kolli inn og kláraði þann leik eins og höfðingi en ég vil ekki setja þetta þannig að munurinn á þessum leik og hinum leikjunum gegn FH sé Stephen. Við erum bara hægt og rólega að bæta okkur eftir hvern leik. Stephen var frábær í dag og hjálpaði okkur klárlega að vinna þennan leik.“ Arnar hrósaði liði FH að leikslokum. „Þeir eru frábærir og eru með virkilega gott lið og frábæran þjálfara. Það sést á liðinu að þetta er gott lið og þess vegna er ég gríðarlega sáttur við okkar leik í dag. Þeir gáfu aðeins eftir og gáfust eiginlega bara upp þegar 8-9 mínútur voru eftir og við kláruðum þetta sannfærandi.“ sagði Arnar að lokum. Halldór Jóhann: Fengum á lúðurinnHalldór Jóhann Sigfússon var ekki alls kostar sáttur við sína menn eftir skellinn sem þeir fengum í Eyjum. „Þetta er allt of stórt tap. 14-13 í hálfleik, ég veit bara ekki hvað gerðist í seinni hálfleik. Við komum ekki út úr hálfleiknum, mér fannst þetta í raun bara sorgleg frammistaða í seinni hálfleik, það var flott umgjörð hérna til að eiga flottan leik en við fengum á lúðurinn,“ sagði Halldór. Markvarslan var eitt af mörgu sem var í toppstandi hjá ÍBV í dag á meðan hlutirnir gengu ekki jafn vel fyrir sig hjá gestunum. „Mér fannst varnarleikurinn vera góður lengst af en við erum ekki með neina markvörslu. Við erum með sjö bolta varða á meðan hann (Stephen Nielsen) er með 20 og eitthvað hinum megin,“ sagði Halldór og hélt áfram: „Svo erum við slakir sóknarlega, ég veit ekki hvað við klúðrum mörgum dauðafærum og tökum fullt af röngum ákvörðunum. Við spilum okkur í raun út úr leiknum, hættum að gera þá hluti sem hafa einkennt okkur í vetur og skiluðu okkur í 2. sæti. Þegar við erum í svona gír lítum við ekki út fyrir að vera lið í 2. sæti.“ Halldór var sérstaklega ósáttur með hversu stórt lið hans tapaði. „Þetta er stór skellur, ég veit ekki hvort menn héldu að þeir væru komnir lengra en við erum í raun. Þú getur alveg komið til Eyja og tapað, þeir eru auðvitað með frábært lið en þú þarft ekki að tapa með níu mörkum,“
Olís-deild karla Mest lesið Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Handbolti Dómari sleginn niður í kvennaleik Körfubolti Robertson sá um að hefna Fótbolti „Hugsaði hvernig ég gæti réttlætt þennan lífstíl fyrir mér áfram“ Sport Messi eyddi kvöldinu með Trump Fótbolti Ronaldo flogið til Spánar og staðan verri en talið var Fótbolti Elvar en ekki Friðriksson Körfubolti Arsenal-menn létu bíða eftir sér í 30 mínútur og 51 sekúndu Enski boltinn Jóhann heim til Íslands heilu og höldnu Fótbolti „Láttu í þér heyra, Orri!“ Fótbolti Fleiri fréttir KA upp um tvö sæti með algjörum risasigri Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Viktor fagnaði fyrsta sigrinum gegn félögum sínum í Magdeburg „Ég er bara ekki nógu gáfaður til að geta rýnt almennilega í þessa stöðu“ Skoruðu tvö á síðustu mínútu og fóru upp fyrir Hauka Árið enn fullkomið hjá sveinum Guðjóns Vals Markaveisla þegar ÍBV vann silfurstrákana Uppgjörið: Valur - Fram 27-35 | Meistararnir fóru illa með toppliðið Elín Klara fékk tíu af tíu mögulegum fyrir frammistöðuna Landsleikirnir við Svía ekki í Laugardalshöll Tvær landsliðskonur urðu eftir heima vegna höfuðhögga Færeyingar unnu sterkan varnarsigur gegn Portúgal „Ógeðslega gaman og ég er ógeðslega ánægð með allar“ „Að vera í þessum íþróttum er stanslaus þjáning“ Engin bikarþynnka hjá Haukum „Það var engin hætta“ Uppgjörið: Ísland - Svartfjallaland 28-27 | Fyrstu stigin komu gegn toppliðinu Norðmenn skipta út landsliðsþjálfaranum sínum „Mér finnst við eiga mikið inni“ Átta ára hark á enda „Við ætlum að spóla upp þessa brekku“ Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Einar Bragi öflugur í mikilvægum Evrópusigri Elliði í liði umferðarinnar eftir mörkin níu gegn Kiel Fleiri breytingar á landsliðinu: Alexandra kemur inn fyrir Ölfu „Leiðinleg tímasetning á þessum meiðslum“ Sigurinn dæmdur af Hauki og félögum því undirskrift vantaði Sonja Lind inn í hópinn fyrir barnshafandi Þóreyju Önnu Skellur fyrir bankabók HSÍ Frábær frammistaða Hauks dugði skammt Sjá meira