Þekktasti ferðamannastaður Möltu hrundi í sjóinn Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 8. mars 2017 14:49 Þessa sjón er ekki hægt að sjá lengur. Vísir/Getty
Þekktasti ferðamannastaður Möltu, Azure-glugginn svokallaði, glæsilegur steinbogi, hrundi í sjóinn í dag. Forsætisráðherra Möltu segir að fregnirnar séu „átakanlegar“. BBC greinir frá. Veður hefur verið slæmt undanfarna daga á Möltu og segja sjónarvottar frá því að steinboginn hafi hrunið í heilu lagi í miklum öldugangi. Varað hefur við því að veðrun og landrof myndi sverfa að steinboganum þótt niðurstöður skýrslu frá árinu 2014 gáfu til kynna að steinboginn myndi þola áganginn í nánustu framtíð.Sjá má stall steinbogans en annað er hreinlega horfið.VísirStaðurinn er afar vinsæll ferðamannastaður, ekki síst eftir að steinboganum brá fyrir í Game of Thrones þáttunum vinsælu. Yfirvöld í Möltu höfðu reynt hvað þau gátu til þess að minnka ágang ferðamanna á steinbogann og voru lagðar sektir við því að ganga yfir steinbogann, án teljandi árangurs, en vinsælt var að stökkva af steinboganum í sjóinn. Heimamenn flykktust að eftir að fregnir bárust af því að steinboginn væri horfinn um aldur og ævi og sagði ráðherrann Anton Refalo að hvarf steinbogans væri líkt því að „missa hluta úr sjálfum sér.“The site from where one could admire it-Tieqa tad-Dwejra. Heartbreaking. pic.twitter.com/S4XV6MyKRu— Joseph Muscat (@JosephMuscat_JM) March 8, 2017
Mest lesið „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Starmer segir af sér Erlent Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Innlent Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Innlent Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent Hrafni bjargað af þaki Byko Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Fleiri fréttir Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Sjá meira