Alfreð gæti verið með á móti Kosóvó Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. mars 2017 08:30 Alfreð Finnbogason skoraði á móti Tyrklandi en hefur ekki spilað síðan. vísir/anton brink
Alfreð Finnbogason, landsliðsframherji í fótbolta, segir það ekki útilokað að hann verði með strákunum okkar þegar Ísland mætir Kosóvó í undankeppni HM 2018 þann 24. mars. Íslenska landsliðið er í þriðja sæti síns riðils eftir fjóra leiki með sjö stig, stigi á eftir Úkraínu og þremur stigum á eftir toppliði Króatíu. Leikurinn á móti Kosóvó sem fram fer í Albaníu er gríðarlega mikilvægur. „Það er ekkert útilokað að ég verði með í landsleiknum. Ég þarf hins vegar fyrst og fremst að spila með mínu félagsliði fyrst, svo ég geti gefið kost á mér í landsliðið,“ segir Alfreð við Morgunblaðið í dag. Alfreð var búinn að vera tæpur vegna meiðsla nær alla leiktíðina áður en hann fékk högg í sigurleik Íslands gegn Tyrklandi á síðasta ári en hann hefur ekki spilað mínútu af fótbolta síðan þá. Hann spilaði síðast fyrir Augsburg 30. september á móti RB Leipzig en liðin mætast einmitt í þýsku 1. deildinni í kvöld. Íslenska liðið er í ákveðnum framherjavandræðum en auk Alfreðs er næstmarkahæsti leikmaður Íslands frá upphafi, Kolbeinn Sigþórsson, einnig meiddur og óvíst hvenær hann snýr aftur á fótboltavöllinn.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Fleiri fréttir Jón Dagur og félagar enn með fullt hús Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna Messi og Suárez í stuði Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Aflýstu leik vegna skutlukasts „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ „Þetta var alltaf mitt mark“ „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Kristian Nökkvi og félagar nokkrum stigum frá toppnum Sigurganga Börsunga heldur áfram Svekkjandi tíu manna janftefli hjá Frey „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Fiskaði rautt spjald í sigri Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Henderson í stuði í stórsigri Mikael lagði upp og meiddist en Logi í basli gegn Salah Sjá meira