Valtteri Bottas hefur mikið að sanna í fyrstu keppni Formúlu 1 tímabilsins, sem fer fram í Ástralíu aðra helgi. Bottas segir að hann verði ekki skelfingu lostinn ef Lewis Hamilton verður fljótari en hann.
Pressan á Bottas hefur aldrei verið meiri. Hann kom frá Williams liðinu til Mercedes í byrjun árs þegar heimsmeistarinn Nico Rosberg ákvað að henda hjálminum upp í hillu.
„Það hefur alltaf verið markmiðið mitt að sitja í bíl sem er sá besti í heimi. Þökk sé Nico þá er þetta að gerast. Ég mun standa mig,“ sagði Bottas í viðtali við Sport Bild.
„Ég finn ekki fyrir meiri pressu en áður. Ég upplifi þetta þannig að mér hafi verið veitt einstakt tækifæri. Ég fæ að aka besta Formúlu 1 bíl sögunnar. Ég hef svo miklu meira að vinna en tapa.“
Bottas er spenntur að sjá hvernig hann stendur sig í samanburði við liðsfélaga sinn, Hamilton.
„Hann er raunverulega viðmiðið. Það verður áhugavert að sjá hvernig hann stillir upp bílnum og hvernig akstursstíll hans er. Ég er að fylgjast með þreföldum heimsmeistara að störfum. Að missa af slíku tækifæri væri heimskulegt.“
„Ég mun ekki gefast upp og verða skelfingu lostinn ef Lewis er fljótari. Frá fyrstu keppni verð ég að vera algjörlega einbeittur en ég veit að ég þarf að læra mikið á skömmum tíma.“
Fyrsta keppni tímabilsins fer fram í Ástralíu þann 26. mars. Þá kemur almennilega í ljós hver goggunarröðin er í Formúlu 1 þetta tímabilið.
Bottas: Verð ekki skelfingu lostin ef Hamilton verður fljótari

Tengdar fréttir

Bottas: Ég get unnið Hamilton
Nýji ökumaður Mercedes liðsins, Valtteri Bottas, segir að hann geti unnið liðsfélaga sinn, Lewis Hamilton í baráttu um heimsmeistarakeppni ökumanna.

Valtteri Bottas fljótastur á öðrum æfingadegi
Finnski ökumaður Mercedes liðsins, Valtteri Bottas var fljótastur á öðrum degi seinni æfingalotunnar fyrir komandi tímabil í Formúlu 1. Max Verstappen á Red Bull fór lengst, 102 hringi.

Force India kynnir bleikan bíl
Force India liðið í Formúlu 1 kynnti í dag nýtt útlit á bíl liðsins. Bíllinn sem var silfur-grár að megninu til er orðinn bleikur að mestu leyti.

Kimi Raikkonen fljótastur á lokaæfingunni fyrir tímabilið í Formúlu 1
Kimi Raikkonen á Ferrari fór hraðast allra í dag og raunar hraðar en nokkur annar á æfingum fyrir tímabilið í ár. Raikkonen var eini ökumaðurinn sem komst undir eina mínútu of 19 sekúndur.