Hátt í átta þúsund flugferðum frestað vegna Stellu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 14. mars 2017 13:19 Það er mikill snjór í norðausturhluta Bandaríkjanna Vísir/AFP
Hríðarbylurinn Stella er nú að skella á norðausturhluta Bandaríkjanna. Reiknað er með að hríðarbylnum fylgi mikil snjókoma og að vindhraði geti orðið allt að 30 metrar á sekúndu. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í fimm ríkjum og hátt í átta þúsund flugferðum verið frestað.Yfirvöld í New York, New Jersey, Pennsylvaníu, Maryland og Virginíu hafa varað íbúa í ríkjunum við að ferðast á næstunni og gildir viðvörunin fram á kvöld. Starfsmönnum alríkisstjórnarinnar í Washington hefur verið gefið leyfi til þess að taka sér frí frá vinnu og þá hefur algjört ferðabann verið sett á í Connecticut. Um 7,700 flugferðum hefur verið frestað og skólastarf í Boston, Baltimore, Philadelphia og New York liggur niðri.Talið er að veðrið muni hafa áhrif á um 31 milljón manns og hefur snjóbylurinn nú þegar lamað samgöngur á svæðinu á milli Washington og Boston. „Þetta verður mjög alvarlegur snjóbylur sem allir ættu að taka mjög alvarlega,“ sagði Bill de Blasio, borgarstjóri New York borgar. Reiknað er með í New York geti snjódýptin náð 30 sentimetrum. Bæði Icelandair og WOW air hafa aflýst öllu sínu flugi til norðurstrandar Bandaríkjanna vegna Stellu, en það eru samtals tíu flug. Reiknað er með að veðrið muni ganga niður með kvöldinu Veturinn hefur verið afar mildur í norðausturhluta Bandaríkjanna í ár, en síðastliðinn febrúar mældist sá hlýjasti á þeim slóðum frá árinu 1895.Það er ekkert að gerast í fluginu.Vísir/Getty
Mest lesið „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Erlent Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Innlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Fleiri fréttir Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Sjá meira