Klúðraði Mercedes eða var Ferrari betra liðið? Daniel Ricciardo í vandræðum á heimavelli, verður raunveruleg barátta um titlana í ár? Þetta og fleira í Bílskúrnum, uppgjöri hvers kappaksturs hér á Vísi.

Lewis Hamilton ræsti keppnina af ráspól, Vettel var annar staðan hélst óbreytt fram að þjónustuhléi Hamilton. Hamiltonfór snemma inn á þjónustusvæðið miðað við aðra sem voru framarlega í keppninni.
Vettel hélt áfram að aka hring eftir hring á fínum tímum, tapaði smávæginlega gagnvart Hamilton fyrst en svo lenti Hamilton fyrir aftan Verstappen sem var á slitnum dekkjum og ók töluvert hægar en Vettel, en hélt Hamilton fyrir aftan sig.
Vettel tók svo þjónustuhlé og komst út á brautina fyrir framan Hamilton og hélt stöðunni til loka. Verstappen skóp því raunar sigur Vettel að sögn margra.
Ofanritaður telur þó raunar frekar að Verstappen hafi átt þátt í að auðvelda Vettel að vinna keppnina. Hamilton reyndi að ná Vettel og gat það ekki, en það veit raunar enginn hversu harkalega Vettel var að taka á Ferrari fáknum. Eitt er víst að keppnin er raunveruleg í ár, sem er afar vel.

Spurning sem vaknar með komu lóunnar. Raikkonen virðist alltaf þurfa að verja sig og sína frammistöðu meira en aðrir. Ekki það að honum finnist það, honum er sennilega slétt sama.
Gagnrýnisraddirnar hafa þó sjaldan verið háværari en nú. Liðsfélagi hans átti keppnina og kom fyrstur í mark en Raikkonen landar léttu fjórða sæti á Ferrari bílnum. Bíllinn var ekki rétt uppstilltur að sögn Finnans.
Staðreyndin er sú að bílar þessarar nýju kynslóðar eru viðkvæmari í uppstillingu en áður, enda meiri kraftar í gangi og því munar meira um hverja skekkju, hvern millimetra eða hvert gramm sem fært er til eða frá. Af því leiðir að rétt uppstilling er mikilvægari en oft áður og munurinn augljósari á góðri og ekki eins góðri uppstillingu.
Kimi Raikkonen er raunar afar líklegur til árangurs í ár. Bílarnir eru almennt eins og hann vill hafa þá, þeir eru snöggir og kraftarnir í kringum þá miklir. Raikkonen hefur sagt að hann sé mjög hrifinn af þeim. Það er því að mati ofanritaðs of snemmt að dæma Raikkonen úr leik og kalla eftir að Antonio Giovinazzi, þróunarökumaður Ferrari taki sæti fyrrum heimsmeistarans.
Giovinazzi tók sæti Pascal Wehrlein hjá Sauber í keppninni en Wehrlein var meiddur. Giovinazzi þótti standa sig með stakri prýði í sinni fyrstu keppni.

Heimamaðurinn, ástralski ökumaðurinn Daniel Ricciardo átti ekkert sérstaka tímatöku, hann var í ágætum málum fram að síðustu lotu tímatökunnar. Hann missti svo stjórn á bílnum í upphafi síðustu lotunnar.
Fyrir keppnina bilaði skynjari í bíl heimamannsins, hann festist í gír á leið sinni á ráslínuna. Liðinu tókst að koma bílnum svo aftur í gang þegar tveimur hringjum var lokið í keppninni. Ricciardo kórónaði svo hryllinginn í heimakeppninni þegar bíllinn bilaði í keppninni. Helgi til að gleyma fyrir heimamanninn.

Nú þegar hefur Valtteri Bottas þurft að þola samanburð við heimsmeistarann, Nico Rosberg. Gárungar eru á því að Rosberg hefði ekkert endilega staðið sig betur í keppninni en Bottas gerði. Niki Lauda, fyrrum heimsmeistari í Formúlu 1 og ráðgjafi Mercedes liðsins er þar á meðal.
Bottas var raunar farinn að sækja á Hamilton í keppninni, svo Finninn er greinilega fljótur að læra. Það verður áhugavert að sjá hvort Bottas verði bannað að taka fram úr Hamilton eða hvort liðið heldur áfram að leyfa ökumönnum sínum að keppa innan skynsemismarka. Það er opinber afstaða liðsins að ökumenn fá að keppa og það er enginn númer eitt innan liðsins.
Bottas byrjaði vel um helgina og er greinilega kominn til að setja mark sitt á Mercedes liðsins.

Fernando Alonso var um langt skeið í keppninni í 10. sæti. Eitthvað sem var ekki beinlínis líklegt þegar liðin yfirgáfu æfingabúðirnar í Barselóna. McLaren-Honda hafði einungis tekist að aka 11 samfellda hringi.
Alonso tók McLaren-Honda bílinn og skellti honum bara í stigasæti. Eins og honum einum er lagið. Það er að segja þangað til fjöðrunin í bílnum gaf sig þegar hann átti fimm hringi eftir. Það var grátlega stutt í stig fyrir hið hnignandi stórveldi.