Ronaldo orðinn fjórði markahæsti Evrópumaðurinn í landsleikjum Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. mars 2017 12:00 Skorar og skorar. vísir/getty
Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Portúgals gegn Ungverjalandi í undankeppni HM 2018 um helgina en hann er nú búinn að skora 70 mörk í 137 landsleikjum fyrir portúgalska landsliðið. Með mörkunum tveimur komst Ronaldo í fjórða sætið yfir markahæstu leikmenn Evrópu í landsleikjum frá upphafi en hann er einu marki á eftir Miroslav Klose, fyrrverandi framherja þýska landsliðsins. Hann skoraði 71 mark í 137 leikjum fyrir Þjóðverja. Það er skemmtileg tilviljun að Ronaldo hafi komist upp í fjórða sætið með tveimur mörkum á móti Ungverjalandi því tveir efstu menn listans spiluðu einmitt fyrir ungverska landsliðið. Langefstur er goðsögnin Ferenc Puskas sem skoraði 84 mörk í 85 landsleikjum fyrir Ungverjaland og samherji hans til margra ára í landsliðinu, Sandor Kocsis, er í öðru sæti með 75 mörk í 68 landsleikjum. Ronaldo á mikið eftir og þyrfti ekki að koma neinum á óvart ef hann verður markahæsti Evrópumaðurinn áður en langt um líður. Það er þó langt í manninn sem hefur skorað flest mörk allra í landsleikjum en Ali Daei skoraði 109 mörk í 149 leikjum fyrir Íran. Ronaldo verður aftur á ferðinni annað kvöld þegar Portúgal mætir Svíþjóð en með marki þar kemst Ronaldo inn á topp tíu yfir markahæstu landsliðsmenn frá upphafi.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Sjá meira