Lóðrétt setur strik í reikning atvinnurekenda Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. maí 2017 09:51 Dæmi um merkingar á áfengi. Lóðrétt strik vinstra megin og lárétt hægra megin. FA
Ný reglugerð um drykkjarvöruumbúðir sem taka á gildi 1. júní getur sett innflutning á drykkjarvörum í uppnám að mati Félags atvinnurekenda. Í reglugerðinni, sem samin er í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, er gerð sú krafa að strikamerki á drykkjarvöruumbúðum verði lóðrétt en ekki lárétt. FA segir þetta skapa viðskiptahindrun sem sé algjörlega órökstudd. Félagið andmælir breytingunni og slíkt hið sama hafa evrópsk samtök áfengisframleiðenda gert. Strikamerki á drykkjarvöruumbúðum eru ýmist lóðrétt eða lárétt. Flestar léttvínsflöskur og flöskur með sterku áfengi eru með láréttu strikamerki en það er mismunandi með bjórtegundir og gosflöskur. Á þeim tegundum sem eru innfluttar sér erlendi framleiðandinn um að setja strikamerkið á vöruna. Vegna smæðar markaðarins er nánast útilokað að erlendir framleiðendur myndu fást til að sérmerkja þær vörur sem flytja ætti til Íslands svo krafa reglugerðarinnar yrði uppfyllt. Þá yrðu innflytjendur að endurmerkja allar flöskur með ærnum tilkostnaði og vinnu. Ljóst er að sá kostnaður myndi að endingu lenda á neytendum með hærra vöruverði segir í frétt á vef Félags atvinnurekenda. Þar kemur fram að frestur til að gera athugasemdir renni út þann 23. maí og ljóst sé nú þegar að reglugerðin muni ekki taka gildi þann 1. júní, því hafi verið frestað. Óljóst sé þó hvort ákvæðið er varðar lóðréttu strikin haldi sér í nýju reglugerðinni þegar hún tekur gildi.
Mest lesið Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Neytendur Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Viðskipti innlent Horfur á húsnæðismarkaði versna Viðskipti innlent Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Viðskipti innlent Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Viðskipti innlent „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Viðskipti innlent Bændur æfir vegna pitsaostsins Viðskipti innlent Verkfallið skaði orðspor Íslands Viðskipti innlent Ágúst til ADVEL Viðskipti innlent Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Horfur á húsnæðismarkaði versna Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Bein útsending: Kynna niðurstöður septembertalningar HMS Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Verkfallið skaði orðspor Íslands Ágúst til ADVEL Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Bændur æfir vegna pitsaostsins Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Jóhanna tekur við sem forstjóri Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Sjá meira