Tveir Gróttustrákar sömdu við Stjörnuna í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. maí 2017 14:53 Aron Dagur Pálsson. Vísir/Vilhelm
Stjarnan gekk í dag frá samningum við tvo nýja leikmenn fyrir komandi tímabil í Olís deild karla í handbolta. Leikstjórnandinn Aron Dagur Pálsson og markvörðurinn Lárus Gunnarsson hafa báðir ákveðið að yfirgefa Gróttu og spila í Garðabænum á næsta tímabili. Þetta er mikill missir fyrir Gróttuliðið, sem endaði einu sæti ofar en Stjarnan í Olís-deildinni í vetur. Stjörnumenn hafa verið duglegir að styrkja sig fyrir komandi leiktíð því á dögunum samdi félagið við landsliðsmanninn Bjarka Má Gunnarsson. Aron Dagur Pálsson er 21 árs og hefur verið fastamaður í unglingalandsliðum Íslands. Hann skoraði 80 mörk í 23 leikjum með Gróttuliðinu í vetur eða 3,5 mörk að meðaltali í leik. Lárus Gunnarsson stóð sig vel í marki Gróttu í vetur en hann mun nú berjast um byrjunarliðssætið við Sveinbjörn Pétursson sem var einn besti markvörður deildarinnar á tímabilinu. Lárus og Sveinbjörn fá nýjan markmannsþjálfara því Björn Ingi Friðþjófsson, fyrrum HK-ingur, mun halda þeim á tánum á næsta tímabili en hann hefur ráðið sig sem markmannsþjálfara Stjörnuliðsins.
Olís-deild karla Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fótbolti Uppgjör: KR-Keflavik 83-91 | Keflavíkurkonur í undanúrslit Körfubolti Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Íslenski boltinn Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Fótbolti Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Körfubolti „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Íslenski boltinn „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gróttukonur sóttu dýrmætan sigur í Mýrina Einar Bragi frábær þegar Kristianstad tryggði sig í undanúrslit Guðjón Valur stýrði Gummersbach til sigurs í ellefta leiknum í röð Elín Klara og félagar sópuðu Skuru í sumarfrí Riðill Íslands á EM klár: Mætast aftur eftir frækna sigurinn Þurftu að stöðva leikinn þar til að hann slökkti ljósin Uppgjör: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Stjarnan heldur sæti sínu í Olísdeild karla Haukakonur með frábæran sigur í Eyjum Viktor Gísli með 54 prósent markvörslu í spænsku deildinni Óðinn og Lena Margrét með sópinn á lofti í úrslitakeppninni Benedikt byrjaði úrslitakeppnina vel Langur samningur og krafan er skýr „Ætla að klára þetta með stæl og vonandi landa þeim stóra“ „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ „Auðvitað bara dugar þetta ekki“ „Undirbúningur, hjartað og baráttan“ „Ekki til betri skemmtun en þetta“ Uppgjörið: FH - Haukar 27-23 | FH-ingar einum sigri frá úrslitum Guðjón Valur missir besta leikmann liðsins í slæm meiðsli „Skemmtilegustu leikirnir að spila“ Fengu tveggja ára bann fyrir að svindla á þolprófi Snorri semur til 2032 Svona kynnti HSÍ nýja samninginn við Snorra og Arnór Díana fer aftur til Fram Sópurinn aftur inn í skáp hjá bæði Birgi Steini og Einari Braga Uppgjörið: Valur - KA 38-34| Valsmenn sópuðu KA í sumarfrí Bjarki klikkaði ekki á skoti í toppslagnum Með gæsahúð um allan líkamann í kveðjuleiknum Snorri og Arnór eftirsóttir: Áhugi erlendis frá en HSÍ enn í forgangi Sjá meira