Fyrri æfingin
Hamilton var fljótastur, en Vettel var annar fljótastur á æfingunni einungis 0,196 sekúndum á eftir Hamilton. Max Verstappen á Red Bull varð þriðji um þriðjungi úr sekúndu á eftir Hamilton.
Jenson Button snéri aftur í dag og var undir stýri í McLaren bílnum sem Fernando Alonso skyldi eftir auðan þegar hann fór til Bandaríkjanna að keppa í Indy 500. Button varð 14. á æfingunni. Rétt um einum tíunda úr sekúndu á eftir liðsfélaga sínum, Stoffel Vandoorne.
Fyrstu tíu ökumennirnir voru allir á sömu sekúndunni. Esteban Ocon á Force India var tíundi sléttri sekúdnu á eftir Hamilton. Nico Hulkenberg á Renault og Marcus Ericsson á Sauber voru síðastir og náðu ekki að setja tíma.

Vettel var í sérflokki á seinni æfingunni. Hann var tæplega hálfri sekúndu á undan Daniel Ricciardo á Red Bull sem varð annar. Vettel var eini sem komst undir eina mínútu og 13 sekúndur. Kimi Raikkonen á Ferrari varð þriðji.
Mercedes liðið hitti á kolranga uppstillingu bílsins á seinni æfingunni. Hamilton varð áttundi á meðan Valtteri Bottas varð 10. Þeir voru rúmlega sekúndu á eftir Vettel.
Renault bíll Jolyon Palmer bilaði snemma á æfingunni og hann náði einungis að aka átta hringi.
Lance Stroll á Williams missti stjórn á bíl sínum og hafnaði á varnarvegg. Fjöðrunin brotnaði hægra megin að framan. Hinn ungi Stroll hefur ekki verið neitt sérstaklega heppinn það sem af er tímabili og mistök eins og þessi í dag gera lítið til að létta pressunni af honum.
Bein útsending frá tímatökunni í Mónakó hefst klukkan 11:50 á laugardag á Stöð 2 Sport. Bein útsending frá keppninni hefst klukkan 11:30 á sunnudag á Stöð 2 Sport.
Hér að neðan má finna öll helstu úrslit helgarinnar.