Real Madrid keypti sextán ára strák á fimm milljarða Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. maí 2017 18:59 Vinicius Junior með verðlaun sín sem besti leikmaður Suður-Ameríkukeppni U17 ára landsliða. Vísir/EPA
Nýkrýndir Spánarmeistarar Real Madrid hafa gengið frá kaupum á brasilíska framherjanum Vinicius Junior frá brasilíska félaginu Flamengo. Það er kannski ekki alveg rétt að segja að þeir hafi gengið frá kaupunum því Vinicius Junior mun ekki koma til Spánar fyrr en í júlí 2019. Real Madrid hefur tryggt sér það að leikmaðurinn verði í eigu Real frá og með júlímánuði 2018. Sky Sports segir frá. Vinicius Junior mun spila áfram Flamengo næstu tvö tímabilin eða þar til að hann er orðinn átján ára gamall. Fjölmiðlar á Spáni segja að Real Madrid sé að borga í kringum 38 milljónir punda fyrir leikinn eða tæpa fimm milljarða íslenskra króna. Vinicius Junior spilaði sinn fyrsta leik með aðalliði Flamengo í þessum mánuði en hann sló í gegn með 17 ára landsliðinu í Suður-Ameríkukeppni U17 liða. Hann hefur verið kallaður næsti Neymar í heimalandinu. Vinicius Junior varð þá markahæsti maður keppninnar með sjö mörk og var í lok hennar kosinn besti leikmaður mótsins. Vinicius Junior hefur skorað 19 mörk í 22 landsleikjum fyrir sautján ára lið Brasilíu og sex mörk í sex leikjum fyrir fimmtán ára landsliðið.Vinicius Junior fagnar marki með Flamengo.Vísir/GettyVinicius JuniorVísir/EPA
Fótbolti Spænski boltinn Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Fleiri fréttir Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Sjá meira