Lendir á mæðrum að brúa bilið frá fæðingarorlofi til dagvistunar Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 31. maí 2017 09:00 Mæðurnar þurfa oftar en ekki að brúa bilið sem myndast eftir að fæðingarorlofi lýkur. Vísir/Getty
Ekki ríkir jafnræði í þjónustu við börn að loknu fæðingarorlofi hér á landi. Ísland sker sig frá öðrum Norðurlöndum þar sem lög segja til um við hvaða aldur börnum skuli boðið upp á dagvistun. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um dagvistunarúrræði sem unnin var af hálfu BSRB og var birt í dag. Þar kemur fram að börn á Íslandi eru að jafnaði um 20 mánaða gömul þegar þau komast inn á leikskóla en samanlagt fæðingarorlof beggja foreldra er níu mánuðir.Sjá einnig: Gætu þurft að bíða í hálft þriðja ár eftir leikskólaplássiAlmennt nýta foreldrar sér dagforeldrakerfið til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla, þar sem það er í boði. Sveitarfélögum ber hins vegar ekki skylda til þess að tryggja framboð dagforeldra né til að niðurgreiða þjónustu þeirra. Aðeins eru starfandi dagforeldrar í 21 af 74 sveitarfélögum í landinu, en í þeim búa um 88 prósent íbúa landsins. Á Íslandi eru engin lög um hvenær börn eigi rétt á dagvistunarúrræðum. Er þetta frábrugðið öðrum Norðurlöndum þar sem réttur barna til dagvistunar helst í hendur við rétt foreldra til fæðingarorlofs þannig að þegar orlofinu sleppir eiga börn lögbundinn rétt á dagvistun.Langflest börn yngri en tólf ára eru heima hjá sér.Vísir/EyþórMæðurnar mun lengur frá vinnu en feðurnir Í skýrslunni segir að miðað við tölur frá Hafstofu Íslands megi áætla að börn komist að meðaltali í einhverja dagvistun, til dæmis leikskóla eða til dagforeldra, á bilinu tólf til fimmtán mánaða gömul. Þar sem fæðingarorlof beggja foreldra sé samtals níu mánuðir þurfi flestir foreldrar að brúa að jafnaði þriggja til sex mánaða bil með einhverjum hætti. Tölur Hagstofunnar sýna jafnframt að langflest börn yngri en tólf mánaða séu hvorki hjá dagforeldrum né á leikskólum. Í skýrslunni segir að það bendi til þess að þau séu heima hjá foreldrum sínum eða ættingjum.Sjá einnig: Feðrum sem nýta rétt til fæðingarorlofs heldur áfram að fækkaRannsóknir sýni hins vegar að mæður axli almennt mestan þunga af því að brúa það bil sem þarf. Ef að barn fái dagvistun tólf mánaða aldri megi því gera ráð fyrir að móðirin hafi verið í um 9,5 mánuði frá vinnu en faðirinn í um 2,5 mánuði. Þá hefur konan verið um fjórfalt lengur frá vinnumarkaði en maðurinn. Núverandi fyrirkomulag tryggi því að litlu eða engu leyti að báðir foreldrar fái jafna möguleika til þátttöku á vinnumarkaði að loknu fæðingarorlofi. Ekki verður séð að jafnræði ríki í þjónustu við börn að loknu fæðingarorlofi. Leggur BSRB því áherslu á að fæðingarorlofið verði lengt í tólf mánuði og tryggja þurfi með lögum rétt barna til leikskólavistunar strax að þeim tíma liðnum.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Gætu þurft að bíða í hálft þriðja ár eftir leikskólaplássi Margir foreldrar barna á Akureyri eru áhyggjufullir þar sem börn fædd í upphafi árs 2016 fá ekki leikskólapláss næsta haust. 11. apríl 2017 07:00 Feðrum sem nýta rétt til fæðingarorlofs heldur áfram að fækka Níutíu prósent feðra tóku fæðingarorlof árið 2008, en 74 prósent á síðasta ári. 8. apríl 2017 14:05 Sér fram á tekjuleysi í rúmt ár Tekjuleysi í rúmt ár blasir við nýbakaðri móður í Bolungarvík þar sem ekkert dagforeldri er í bænum. Fleiri eru í sömu stöðu en húsnæði sem ætlað er dagforeldrum hefur staðið autt í tvö ár. 18. maí 2017 20:00 Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Vance þreifar fyrir sér í Sviss Erlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Fleiri fréttir Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Sjá meira
Gætu þurft að bíða í hálft þriðja ár eftir leikskólaplássi Margir foreldrar barna á Akureyri eru áhyggjufullir þar sem börn fædd í upphafi árs 2016 fá ekki leikskólapláss næsta haust. 11. apríl 2017 07:00
Feðrum sem nýta rétt til fæðingarorlofs heldur áfram að fækka Níutíu prósent feðra tóku fæðingarorlof árið 2008, en 74 prósent á síðasta ári. 8. apríl 2017 14:05
Sér fram á tekjuleysi í rúmt ár Tekjuleysi í rúmt ár blasir við nýbakaðri móður í Bolungarvík þar sem ekkert dagforeldri er í bænum. Fleiri eru í sömu stöðu en húsnæði sem ætlað er dagforeldrum hefur staðið autt í tvö ár. 18. maí 2017 20:00