Látinn fara frá Roma eftir stiga- og markamet Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. maí 2017 09:30 Luciano Spalletti er atvinnulaus. vísir/getty
Roma hefur ákveðið að semja ekki aftur við Luciano Spalletti þrátt fyrir að þjálfarinn skilaði liðinu í annað sæti ítölsku A-deildarinnar á síðustu leiktíð. Forráðamenn Rómarliðsins tilkynntu þetta eftir að það vann Genoa, 3-2, í lokaumferð deildarinnar á sunnudaginn en sigurinn tryggði liðinu annað sætið og þannig sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Spalletti, sem var að þjálfa Roma öðru sinni á ferlinum, setti bæði stiga- og markamet hjá liðinu á leiktíðinni. Rómverjar enduðu með 87 stig, fjórum stigum minna en meistarar Juventus, og skoruðu 90 mörk. Spalletti tók við liðinu á ný fyrir 16 mánuðum síðan en þrátt fyrir þennan frábæra árangur telja forráðamenn félagsins að hann sé ekki maður framtíðarinnar í Rómarborg. „Við viljum þakka Spalletti fyrir allt það sem hann hefur lagt á sig og árangurinn síðan hann kom aftur. Félagið er alltaf að þróast og við viljum halda því áfram með ráðningu nýs þjálfara sem deilir hugmyndafræði okkar,“ segir í fréttatilkynningu Roma. Spalletti hefur verið mikið gagnrýndur fyrir að geyma goðsögnina Francesco Totti á bekknum á þessari leiktíð en hann stýrði áður Roma frá 2005-2009 og vann þá ítalska bikarinn í tvígang.
Ítalski boltinn Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Fleiri fréttir Gummi Ben væri mikið til í að spila með KR-liðinu í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákons grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Sjá meira