Robert Kubica keyrir fyrir Renault á ný

Eftir að hafa misst hluta hreyfigetu í hægri handlegg er Kubica kominn aftur undir stýri og skoðar möguleikann á endurkomu í Formúlu 1. Kubica prufukeyrði bíl Renault í Valencia í júní og greindi BBC frá því í dag að hann muni koma við sögu í fleiri prufukeyrslum fyrir félagið.
Í febrúar 2011 slasaðist Kubica alvarlega í árekstri í rallýkeppni á Ítalíu. Eftir slysið kom í ljós að pólski ökuþórinn hefði misst hluta hreyfigetunnar í hægri handlegg og þurfti hann að gangast undir mikla endurhæfingu til að geta keyrt aftur.
Fyrir slysið var Kubica talinn einn efnilegasti ökuþór Formúlu 1, en hann hefur ekki keppt í formúlukappakstri síðan.
Talsmenn Renault vildu ekki tjá sig um málið að svo stöddu, en það eru jákvæðar fréttir að Pólverjinn sé kominn aftur út á kappakstursbrautina.
Tengdar fréttir

Kubica vann fyrsta mót endurkomunnar
Pólski ökuþórinn Robert Kubica vann sigur í sínu fyrsta móti eftir að hafa lent í lífshættulegu slysi fyrir rúmu einu og hálfu ári. Kubica keppti í ítölsku landsrally í dag.

Kubica fer í enn eina aðgerðina
Pólski ökuþórinn Robert Kubica hefur nú farið í enn eina aðgerðina vegna meiðslana sem hann hlaut í rallýslysi í byrjun árs 2011.

Kubica: Tel mig mjög heppinn og löng og erfið endurhæfing framundan
Formúlu 1 ökumaðurinn Robert Kubica telur sig heppinn að hafa sloppið jafnvel frá óhappi í rallkeppni á Ítalíu á dögunum og raun ber vitni. Um tíma var óttast um líf hans, eftir að vegrið gekk í gegnum miðjan rallbíl hans og Jakup Gerber.

Kubica byrjar á skelli í rallinu
Velti bíl sínum á öðrum degi keppninnar en hvorki hann né aðstoðarökumaður hans meiddust.

Kubica vill bara vera í formúlunni
Robert Kubica, pólverjinn sem varð í hræðilegu rallýslysi í febrúar 2010, segist vilja snúa aftur í Formúlu 1 sem fyrst enda sé það eina mótaröðin sem hann vilji taka þátt í. Kubica hefur verið í stífri endurhæfingu þessi þrjú ár og tekið þátt í minniháttar rallýmótum undanfarið.