Drap eiginkonuna því hún hló að honum Kjartan Kjartansson skrifar 28. júlí 2017 12:00 Skemmtiferðaskipið Emerald Princess var við strendur Alaska þegar konunni var ráðinn bani. Myndin er úr safni. Vísir/EPA
Karlmaður er grunaður um að hafa ráðið eiginkonu sinni bana um borð í skemmtiferðaskipi við Alaska. Vitni segir að maðurinn hafi drepið konuna vegna þess að hún hætti ekki að hlæja að honum. Lík konunnar fannst í káetu þeirra hjóna. Miklir höfuðáverkar voru á því. Maðurinn hefur verið ákærður fyrir morðið, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Vitni sem kom inn í káetuna á undan öryggisvörðum segist hafa séð manninn draga lík konunnar í átt að svölum káetunnar. Vitnið greip hins vegar í ökkla konunnar og togaði hana aftur inn. Þegar vitnið spurði manninn hvað hefði gerst á hann að hafa sagt: „Hún vildi ekki hætta að hlæja að mér“. Atburðurinn átti sér stað um borð í skemmtiferðaskipinu Emerald Princess á þriðjudagskvöld. Maðurinn, sem er 39 ára gamall eins og eiginkonan var, er sagður hafa sagt alríkislögreglumönnum að lífi hans væri lokið. Hann var handtekinn þegar öryggisverðirnir sáu blóð á höndum hans og fötum.
Mest lesið „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Innlent Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Innlent Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Erlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Innlent Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Innlent „Held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín“ Innlent Fleiri fréttir Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Sjá meira