Forsætisráðherra Pakistans settur af með dómsvaldi Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 28. júlí 2017 08:32 Sharif sagði af sér eftir úrskurð Hæstaréttar í dag. Vísir/EPA
Hæstiréttur Pakistans úrskurðaði í morgun að forsætisráðherra landsins, Nawaz Sharif, skuli víkja úr embætti. Dómurinn komst að því að Sharif hafi farið á bakvið þing landsins og dómskerfi og sé því ekki hæfur til að stjórna landinu. Sharfi sagði af sér í kjölfarið, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Dómararnir hafa undanfarin misseri verið að rannsaka meint tengsl Sharif við aflandsreikninga og lúxuseignir í útlöndum sem skráðar eru á þrjú barna hans. Reikningarnir komu í ljós í Panamaskjölunum svokölluðu árið 2015 og forsætisráðherrann hafði ekki gert grein fyrir þeim í fjárhagsyfirlýsingu þegar hann tók við embætti forsætisráðherra. Þrátt fyrir að nafn Sharif komi ekki fyrir í Panamalekanum var fljótlega farið að tengja ákveðin fyrirtæki á listanum við ráðherrann og fjölskyldu hans og hafa verið haldin fjöldamótmæli í landinu þar sem þess er krafist að Sharif víki sökum spillingar. Þetta er í fyrsta sinn sem leiðtoga landsins er komið frá völdum með ákvörðun dómstóla. Þetta er hins vegar engan veginn í fyrsta sinn sem leiðtoga Pakistans er komið frá völdum með einum eða öðrum hætti. Sharif átti aðeins eitt ár eftir af kjörtímabili sínu og hefði hann náð að sitja það til enda hefði hann orðið fyrsti forsætisráðherrann í sögu landsins sem klárar kjörtímabil.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira