Hneyksli vegna ríkisleyndarmála skekur sænsku ríkisstjórnina Kjartan Kjartansson skrifar 24. júlí 2017 14:53 Frá blaðamannafundinum þar sem Stefan Löfven og yfirmenn samgöngustofnunarinnar, öryggislögreglunnar og hersins svöruðu fyrir hneykslið. Vísir/EPA
Mistök og vanræksla við útvistun tölvuþjónustu sænska ríkisins hefur dregið dilk á eftir sér og gæti jafnvel ógnað stöðu nokkurra ráðherra í ríkisstjórn Stefans Löfven forsætisráðherra. Stjórnarandstaðan hótar að leggja fram vantrauststillögu. Forsaga málsins er sú að samgöngustofnun Svíþjóðar bauð út rekstur á tölvukerfi sínu en vanrækti að gæta öryggis gagnanna. Afleiðing var sú að starfsmenn tékknesks tölvufyrirtækis sem ekki höfðu öryggisheimild gátu skoðað persónugreinanleg gögn. Á meðal gagnanna voru upplýsingar um alla þá sem eru með ökuskírteini í Svíþjóð með nöfnum þeirra, fæðingardegi og myndum. Sænskir fjölmiðlar hafa einnig greint frá því að nöfn hermanna og upplýsingar um herökutæki og varnaráætlanir gætu verið í tölvukerfi samgöngustofnunarinar. Þannig hafi heimilisföng orrustuflugmanna í sænska flughernum og gagnagrunnar með sakaskrám fólks verið aðgengilegir austur-evrópskum tölvunarfræðingum.Löfven ver ráðherra sínaMiðvinstristjórn Löfven er undir miklum þrýstingi vegna málsins en fjölmiðlar og almenningur hefur krafist þess að vita hvaða ráðherrar vissu um málið og hvenær þeir fengu vitneskju um það. Löfven sagði á blaðamannafundi í dag að hann hefði fengið upplýsingarnar um málið í janúar. Þrátt fyrir að tveir ráðherrar í ríkisstjórninni hafi vitað af því í ár þá beri hann enn traust til allrar ríkisstjórnarinnar að svo komnu máli. „Við höfum dregið úr skaðanum og bætt úr mistökunum,“ sagði Löfven sem sagðist fagna því að sænska þingið rannsakaði málið. Hann gerði þó lítið úr boðuðu vantrausti stjórnarandstöðunnar, að því er segir í frétt sænska ríkisútvarpsins SVT.Financial Times segir að það sé til marks um hversu alvarlegt málið sé að yfirmaður sænsku öryggislögreglunnar, yfirherfshöfðingi sænska hersins og nýr yfirmaður samgöngustofnunarinnar hafi verið viðstaddir blaðamannafundinn. Maria Ågren, fyrrverandi yfirmaður samgöngustofnunarinnar, var rekin í janúar en ástæður uppsagnarinnar voru ekki gefnar upp á sínum tíma. Hún var sektuð um 70.000 sænskar krónur fyrir kæruleysi í meðferð leynilegra upplýsinga í síðasta mánuði. Ríkisstjórnin hefur lofað rannsókn á því þegar rekstur tölvukerfis samgöngustofnunarinnar var boðinn út til IBM árið 2015.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Fleiri fréttir Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Sjá meira