Pence ítrekar stuðning Bandaríkjanna við Eystrasaltslöndin Kjartan Kjartansson skrifar 31. júlí 2017 18:04 Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, tekur í hönd Kersti Kaljulaid, forseta Eistlands í dag. Vísir/AFP
Varaforseti Bandaríkjanna, Mike Pence, hét Eystrasaltslöndunum að koma þeim til varnar gegn yfirgangssemi Rússa í dag. Kallaði Pence Rússland stærstu öryggisógn landanna í opinberri heimsókn í Eistlandi. „Árás á eitt okkar er árás á okkur öll,“ sagði Pence í ræðu sinni, að því er kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Stjórnvöld í Eystrasaltslöndunum, Eistlandi, Lettlandi og Litháen, hafa verið uggandi eftir að Rússar innlimuðu Krímskaga í Úkraínu árið 2014. Reiða þau sig á NATO til að verja sig fyrir hugsanlegum ágangi Rússa.Trump hét stuðningi seintFramferði Donalds Trump Bandaríkjaforseta olli því leiðtogum ríkjanna hugarangri framan af forsetatíð hans. Í kosningabaráttunni hafði hann lýst NATO sem „úreltu.“ Þá vakti athygli að hann ítrekaði ekki samstöðu Bandaríkjanna með bandamönnum sínum á leiðtogafundi NATO í Brussel í maí. Réðst hann hins vegar að öðrum leiðtogum fyrir greiða ekki meira til eigin varna. Skapaði þetta vafa um hvort að Bandaríkin myndu koma fyrrverandi austantjaldslöndunum til varnar. Trump tók þó af tvímæli um það í júní og aftur í opinberri heimsókn í Póllandi fyrr í þessum mánuði. Pence bar leiðtogum Eystrasaltsríkjanna þau skilaboð frá Trump nú að Bandaríkjamenn stæðu með þeim. Sagði hann enga hættu eins aðsteðjandi fyrir ríkin þrjú og „óútreiknanlegur“ nágranni þeirra í austri. „Sterkt og sameinað NATO er nauðsynlegra í dag en á nokkrum tímapunkti frá því að kommúnisminn leið undir lok fyrir aldarfjórðungi,“ sagði varaforsetinn.
Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira