Mercedes menn fljótastir á föstudagsæfingum á Monza Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 1. september 2017 17:15 Valtteri Bottas á Mercedes var fljótastur á seinni æfingu dagsins. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur á fyrri æfingu dagsins á Monza brautinni. Liðsfélagi hans, Valtteri Bottas varð annar á fyrri æfingunni og fljótastur á þeirri seinni.Fyrri æfingin Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji á fyrri æfingunni rúmlega sekúndu á eftir Hamilton. Ökumenn fóru snemma af stað út á brautina. Ítalska veðrið gerði sig líklegt til að væta upp í viðstöddum. Kimi Raikkonen á Ferrari varð fjórði rétt á eftir Vettel. Mercedes, Ferrari, Red Bull og Force India fylltu upp í fyrstu átta sætin á æfingunni. Stoffel Vandoorne varð níundi á McLaren bílnum. Rigningin lét svo sjá sig þegar 15 mínútur voru eftir. Haas breytti áætlun sinni vegna rigningaspár. Til stóð að leyfa Antonio Giovonazzi að aka bíl Kevin Magnussen á æfingunni. Ekkert varð þó úr því.Sebastian Vettel á Ferrari yrði afar vinsæll hjá dyggustu stuðningsmönnum Ferrari sem kalla sig Tifosi ef honum tækist að vinna á heimavelli liðsins á sunnudag.Vísir/GettySeinni æfingin Hamilton varð annar á æfingunni. Vettel varð aftur þriðji en nú töluvert nær Mercedes-mönnum. Hann var 0,14 sekúndum á eftir Bottas. Ökumenn McLaren liðsins komu sér í átunda og níunda sæti. Honda vélin hefur sennilega ekki náð þessum framförum heldur eru aðrir að aka á minna afli og að æfa lengri aksturskafla. Fernando Alonso á McLaren mun hljóta að lágmarki 35 sæta afturfærslu á ráslínu vegna nýrra íhluta í vél sem hann hefur tekið í notkun. Carlos Sainz mun færast aftur um 10 sæti á ráslínu eftir að hann þarf nýja vélarrafal í Toro Rosso bíl sinn. Vélin gaf sig hjá Spánverjanum. Magnussen lagði bíl sínum á lokamínútum æfingarinnar við Ascari beygjurnar með brotna fjöðrun. Bein útsending frá tímatökunni á Monza hefst klukkan 11:50 á morgun á Stöð 2 Sport. Bein útsending frá keppninni hefst klukkan 11:30 á sunnudag, á Stöð 2 Sport.Hér að neðan má sjá öll helstu úrslit helgarinnar á gagnvirku brautarkorti.
Formúla Tengdar fréttir Lewis Hamilton vann á Spa og kyndir undir heimsmeistarakeppninni Lewis Hamilton á Mercedes kom fyrstur í mark í belgíska kappakstrinum í Formúlu 1. Sebastian Vettel varð annar á Ferrari og Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji. 27. ágúst 2017 13:23 Spennan var yfirþyrmandi á Spa | Sjáðu uppgjörsþáttinn Rúnar Jónsson og Kristján Einar Kristjánsson, sérfræðingar Stöðvar 2 Sport fara yfir öll helstu atvikin í belgíska kappakstrinum sem fram fór á Spa í dag. 27. ágúst 2017 15:15 Bílskúrinn: Baráttan harðnaði í Belgíu Lewis Hamilton vann belgíska kappaksturinn um helgina. Með því saxaði hann forskot Sebastian Vettel í heimsmeistarakeppni ökumanna niður um helming. 30. ágúst 2017 10:30 Hamilton: Ég kom hingað til að sækja sigur Lewis Hamilton kom fyrstur í mark í belgíska kappakstrinum í Formúlu 1 í dag. Hann var undir pressu alla keppnina frá Sebastian Vettel. Hver sagði hvað eftir keppnina? 27. ágúst 2017 14:30 Mest lesið „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ Íslenski boltinn Þvælu að starf Ole Gunnar sé í hættu Fótbolti Hato mættur á Brúnna Enski boltinn Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Enski boltinn „Alltaf gaman að skora fyrir uppeldisfélagið“ Íslenski boltinn Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Enski boltinn Partey á leið til Villareal þrátt fyrir nauðgunar ákærur Fótbolti Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ Íslenski boltinn „Dómur af himnum ofan“ Íslenski boltinn Þurfa þrjú stig „ef við ætlum ekki að lenda í veseni“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leclerc hélt ekki í við hraðann og Norris náði mögnuðum sigri Hamilton segir Ferrari þurfa nýjan ökumann því hann sé gagnslaus Leclerc óvænt á ráspól í Ungverjalandi Verstappen slekkur á öllum sögusögnunum Ákvörðunin að reka Horner að mestu vegna slaks árangurs Rigningin setti strik í reikninginn er Piastri sigraði í Belgíu Hætt að rigna í Francorchamps og ræs klukkan eitt Úrhellir í Belgíu og tvísýnt með keppni dagsins Norris á ráspól í Belgíu á morgun Verstappen vann sprettinn í Belgíu Ekki hissa á því að Horner hafi verið rekinn Gæti fengið átta milljarða króna Brottreksturinn kom Horner í opna skjöldu Rekinn sextán mánuðum eftir skandalinn Sjá meira
Lewis Hamilton vann á Spa og kyndir undir heimsmeistarakeppninni Lewis Hamilton á Mercedes kom fyrstur í mark í belgíska kappakstrinum í Formúlu 1. Sebastian Vettel varð annar á Ferrari og Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji. 27. ágúst 2017 13:23
Spennan var yfirþyrmandi á Spa | Sjáðu uppgjörsþáttinn Rúnar Jónsson og Kristján Einar Kristjánsson, sérfræðingar Stöðvar 2 Sport fara yfir öll helstu atvikin í belgíska kappakstrinum sem fram fór á Spa í dag. 27. ágúst 2017 15:15
Bílskúrinn: Baráttan harðnaði í Belgíu Lewis Hamilton vann belgíska kappaksturinn um helgina. Með því saxaði hann forskot Sebastian Vettel í heimsmeistarakeppni ökumanna niður um helming. 30. ágúst 2017 10:30
Hamilton: Ég kom hingað til að sækja sigur Lewis Hamilton kom fyrstur í mark í belgíska kappakstrinum í Formúlu 1 í dag. Hann var undir pressu alla keppnina frá Sebastian Vettel. Hver sagði hvað eftir keppnina? 27. ágúst 2017 14:30