Jarvis Cocker kemur fram á hátíð Sigur Rósar í Hörpu Stefán Árni Pálsson skrifar 18. september 2017 14:30 Fjölmargir þekktir listamenn koma fram.
Jarvis Cocker, Kevin Shields, Stars of the Lid, Dan Deacon and Julianna Barwick eru meðal þeirra sem koma fram í Hörpu í desember á listahátíðinni Norður og Niður. Fréttablaðið greindi frá því í síðustu viku að alvarlegt mál hafi komið upp vegna fyrirhugaðrar tónleikaraðar hljómsveitarinnar Sigur Rósar í Hörpu þar sem tugir milljóna úr miðasölu tónleikanna eru horfnir. Sveitin Sigur Rós sendi frá sér tilkynningu um fyrstu listamennina sem staðfestir hafa verið á Norður og niður hátíðinni í Hörpu. Miðasala á hátíðina hefst fimmtudaginn 28. september á nordurognidur.isSöngvari bresku hljómsveitarinnar Pulp, Jarvis Cocker, er meðal fyrstu listamanna sem tilkynntir eru á hátíðina en þar má einnig finna Kevin Shields úr My Bloody Valentine, sem kemur fram í fyrsta sinn hér á landi á hátíðinni. Hið goðsagnakennda dúó Stars of the Lid mun koma hingað frá Bandaríkjunum og Juliana Barwick snýr aftur til landsins eftir að hafa tekið hér upp plötu sína Nepenthe frá 2013. Íslandsvinurinn Dan Deacon kemur einnig fram á hátíðinni. Að auki munu upprennandi íslenskir listamenn koma fram og má þar nefna hljómsveitina Hugar og nýtt verkefni Jófríðar, JFDR. Sin Fang, Sóley og Örvar Smárason munu einnig í fyrsta sinn flytja saman tónlist frá glænýju samstarfsverkefni þeirra. Öll þessi atriði eiga það sameiginlegt að tengjast meðlimum Sigur Rósar á einn eða annan hátt. Fleiri atriði verða tilkynnt á næstu vikum. Um er að ræða veigamikla listahátíð sem Sigur Rós stendur fyrir frá 27. til 30. desember þar sem vinir og samverkafólk hljómsveitarinnar munu koma fram í öllum mögulegum og ómögulegum plássum sem finna má í Hörpu. Forsala Senu Live hefst miðvikudaginn 27. september kl. 10:00. Takmarkað magn passa er í boði og forsölunni lýkur í síðasta lagi kl. 22:00 sama dag.
Tengdar fréttir Sakna tuga milljóna úr miðasölu hjá Sigur Rós Ríflega 30 milljónir króna af miðasölu tónleikaraðar Sigur Rósar í Hörpu í desember eru horfnar. Ábyrgðarmaður tónleikanna fékk fyrirframgreiðslu hjá Hörpu. 13. september 2017 05:00 Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Ugla yfirgefur borgina Lífið Fleiri fréttir Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Sjá meira
Sakna tuga milljóna úr miðasölu hjá Sigur Rós Ríflega 30 milljónir króna af miðasölu tónleikaraðar Sigur Rósar í Hörpu í desember eru horfnar. Ábyrgðarmaður tónleikanna fékk fyrirframgreiðslu hjá Hörpu. 13. september 2017 05:00