Fellibylurinn María stefnir hraðbyri á Púertó Ríkó Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. september 2017 08:52 Myndin er tekin í borginni San Juan í Púertó Ríkó í gær þar sem íbúar og yfirvöld búa sig undir komu Maríu. vísir/epa
Fimmta stigs fellibylurinn María er nú kominn til eyjunnar Vieques sem tilheyrir Púertó Ríkó en fellibylurinn stefnir nú hraðbyri þangað. Vindhraði Maríu er nú 280 kílómetrar á klukkustund. María olli gríðarlegri eyðileggingu þegar hún gekk yfir eyjarnar Guadeloupe og Martinique í Karíbahafinu í gær. Tugir þúsunda heimila á eyjunum eru án rafmagns og þá er staðfest að að minnsta kosti einn lést á Guadeloupe. Dómíníka var fyrsta eyjan sem varð fyrir barðinu á Maríu. Erfitt hefur reynst að fá fregnir þaðan vegna rafmagns-og símaleysis. Óstaðfestar fregnir herma þó að sex hafi látist og 90 prósent bygginga á eyjunni hafi orðið fyrir skemmdum þegar fellibylurinn gekk yfir. Ricardo Rossello er ríkisstjóri í Púertó Ríkó. Hann segir að yfirvöd á eyjunni hafi nýlega gert áætlanir sem gerðu ráð fyrir að tveir fellibyljir myndu skella þar á með stuttu millibili. Fyrr í þessum mánuði gekk fellibylurinn Irma yfir eyjarnar í Karíbahafi og olli mikilli eyðileggingu og töluverðu manntjóni. „Sem betur fer þá undirbjuggum við okkur fyrir þetta. Við vorum að hugsa um að hér gætu skapast alveg fáránlegar aðstæður og ein af þeim var að hér á Púertó Ríkó gætum við fengið tvo fellibylji með afar stuttu millibili,“ segir Rossello en bætir við: „Þetta er mjög hættulegt. Þú getur byggt upp innviði á ný en þú færð aldrei þá sem farast í svona hamförum til baka. Við munum því einbeita okkur að því næstu 72 tímana að bjarga mannslífum.“ Yfirvöld óttast að rústir og annað sem Irma eyðilagði á Púertó Ríkó muni nú valda enn meiri skaða þegar María gengur yfir. Þá er áhyggjuefni að mikil úrkoma getur valdið aurskriðum sums staðar á eyjunni. Margir íbúa annarra Karíbahafseyja hafa flúið undan Irmu og Maríu síðustu daga og vikur og farið til Púertó Ríkó. Hefur hundruðum neyðarskýla verið komið upp á eyjunni.
Dóminíka Tengdar fréttir María reif þakið af húsi forsætisráðherrans Íbúar Dóminíku erum búnir að tapa öllu sem peningar geta keypt að sögn forsætisráðherrans. 19. september 2017 07:02 Meira tjón fram undan vegna Mariu Þök rifnuðu af húsum á Dóminíku og mikil flóð dundu á Guadeloupe í Karíbahafi í gær þegar fimmta stigs fellibylurinn Maria gekk yfir. Búist er við frekara tjóni í dag. Vindhraði Mariu jókst óvenjuhratt vegna hitastigs sjávar. 20. september 2017 06:00 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Sjá meira
María reif þakið af húsi forsætisráðherrans Íbúar Dóminíku erum búnir að tapa öllu sem peningar geta keypt að sögn forsætisráðherrans. 19. september 2017 07:02
Meira tjón fram undan vegna Mariu Þök rifnuðu af húsum á Dóminíku og mikil flóð dundu á Guadeloupe í Karíbahafi í gær þegar fimmta stigs fellibylurinn Maria gekk yfir. Búist er við frekara tjóni í dag. Vindhraði Mariu jókst óvenjuhratt vegna hitastigs sjávar. 20. september 2017 06:00