Það er hins vegar þess virði og ég tala nú ekki um þegar maður er að spila í gegnum leikinn með öðrum, sem er einkar skemmtilegt. Allt getur einhvern veginn gerst og söguheimurinn Rivellion er stórkostlega vel gerður og ítarlegur. Einnig er hægt að berjast gegn öðrum spilurum á netinu.
Án þess að skemma eitthvað, þá eru mjög langur tími liðinn frá fyrri leiknum og guðirnir hafa yfirgefið söguheiminn, vond skrýmsli herja á allt og alla og samansafn af hetjum þarf að koma honum til bjargar. Það er þó aðeins flóknara en það og jafnvel töluvert.
Frelsi DOS2 kemur fyrst í ljós þegar spilarar velja sér persónu til að spila. Þar er hægt að spila fimm tegundir sem eru menn, álfar, dvergar, eðlufólk (ekki það sem stjórnar heiminum á bak við tjöldin) og jafnvel ódauðar persónur. Ég á þó eftir að prófa það, en miðað við það sem ég hef lesið og séð er það mjög áhugavert.
Það er hægt búa til nýjar persónur eða velja aðrar sem eru þegar til. Þær munu svo vera í föruneyti spilara. Seinna meir er þó mögulegt að breyta öllum persónunum upp á nýtt og leika sér með hæfileika og classa. Það borgar sig að fikta.

Allar persónur leiksins virðast geta dáið, sama þó þær séu lykilaðilar í mikilvægum verkefnum.
Leikurinn er vel skrifaður og handritshöfundar Larian Studios eru góðir í því að leika sér með tilfinningar spilara. Hann lítur vel út og borðin eru ítarleg og skemmtilega vel hönnuð.

Það er einnig heill haugur af smávægilegum persónum sem spilarar rekast á og eru einstakar og skemmtilegar á sinn hátt. DOS2 er stútfullur af eftirminnanlegum atvikum.
Smá samantekt
Ef þið hafið gaman af góðum ævintýrum og spiluðuð/spilið jafnvel D&D með vinum ykkar þá munu þið hafa gaman af DOS2. Hann lítur vel út, hljómar vel og er skemmtilegur og krefjandi. Topp leikur og líklega einn besti klassíski RPG-leikur sem ég hef spilað. Verið samt tilbúin til að verja miklum tíma í hann.