Framtíð doktorsnáms á Íslandi Védís Ragnheiðardóttir skrifar 18. október 2017 09:00 Framtíðin er björt í vísindastarfi og rannsóknum á Íslandi ef marka má fjölda skráðra doktorsnema við Háskóla Íslands. Mikillar grósku og vaxandi áhuga á rannsóknartengdu framhaldsnámi má merkja í aukningu doktorsnema við skólann. Þannig hefur skráðum doktorsnemum fjölgað úr 346 árið 2009 í 597 árið 2016 eða um 72,5%. Því miður hefur fjármagn til innlendra samkeppnissjóða og háskólans ekki fylgt þessari þróun. Í stefnu og aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs 2014–2016 var rætt fjálglega og af metnaði um öfluga nýliðun í vísindum og nýsköpun á Íslandi og var markið sett hátt; styrkja átti fjármögnun doktorsnáms með það að markmiði að frá og með árinu 2016 yrðu árlega 200 doktorsnemastöður að fullu fjármagnaðar úr innlendum samkeppnissjóðum. Þá var stefnan sett á að árið 2016 myndu 3% af vergri landsframleiðslu renna til vísinda og nýsköpunar. Því miður hefur hvorugt markmiðanna náðst. Í nýútkominni skýrslu Hagstofunnar kemur fram að í stað hækkunar í 3% af vergri landsframleiðslu hafa heildarútgjöld til rannsókna- og þróunarstarfs lækkað úr 2,17% árið 2015 í 2,08% á árinu 2016. Það jafngildir lækkun hlutfallslegra útgjalda um sem nemur 0,09% af vergri landsframleiðslu. Þegar horft er til samkeppnissjóða má sjá að langt er í land. Helsti samkeppnissjóður sem doktorsnemar á Íslandi geta sótt um í er rannsóknasjóður Rannís. Þegar skoðuð er úthlutun ársins 2016 má sjá að af 40 umsóknum um doktorsnemastyrki hlutu aðeins 12 styrk (27,3% árangurshlutfall). Auk þess eiga doktorsnemar þess kost að þiggja laun úr stærri styrkjum Rannsóknasjóðs Rannís, svokölluðum öndvegis- og verkefnastyrkjum, þá jafnan sem hluti af stærri rannsóknarverkefnum leiðbeinanda. Tölur um fjölda doktorsnema sem þiggja laun úr slíkum styrkjum eru ekki hluti af opinberum gögnum Rannís fyrir úthlutunarárið 2016. Til viðmiðunar má þó nefna að árið 2015 þáðu 59 doktorsnemar laun úr öndvegis- og verkefnastyrkjum og ólíklegt má telja að sá fjöldi hafi aukist þar sem fjármagn hefur ekki aukist að ráði. Sé Rannsóknasjóður Háskóla Íslands talinn með – en hann er aðeins opinn doktorsnemum við Háskóla Íslands – eykst fjöldi styrktra nema um 32. Umsækjendur í sjóðinn voru aftur á móti 146 og var árangurshlutfall því 21,9%. Ef tekið er mið af tölum um úthlutanir 2016 og um öndvegis- og verkefnastyrki frá 2015 er hér um að ræða 103 doktorsnemastöður. 97 stöður vantar upp á markmið stefnu og aðgerðaáætlunar Vísinda- og tækniráðs 2014–2016. Við þetta má bæta að árið 2017 fjölgaði umsóknum til Rannsóknasjóðs Rannís og árangurshlutfallið lækkaði úr 27,3% í 23,3% eða um sem nemur 14,6%. Í stefnu Vísinda- og tækniráðs fyrir árin 2017–2019 er markmið um 3% af vergri landsframleiðslu til vísinda og nýsköpunar á ný sett fram en í þetta sinn er gefið meira svigrúm til að ná þessu markmiði: sjö ár í stað tveggja, eða til ársins 2024. Þá er ekki minnst á doktorsnám eða styrktar doktorsnemastöður í stefnunni. Af ofangreindu má sjá að hættumerki eru á lofti, hlutfallsleg útgjöld af vergri landsframleiðslu til rannsóknar- og þróunarstarfs hafa lækkað um 0,09% milli ára og metnaður fyrir öflugu doktorsnámi, rannsóknum og nýsköpun virðist fara minnkandi ef marka má stefnu Vísinda- og tækniráðs fyrir árin 2017–2019. Mikilvægt er að bregðast hratt við ef ekki á að setja öflugt og ört vaxandi doktorsnám og rannsóknir og nýsköpun á Íslandi í hættu. Ég hvet frambjóðendur allra flokka til að setja fram sterka og metnaðarfulla framtíðarsýn um rannsóknir og nýsköpun og beita sér fyrir eflingu doktorsnáms með því að tryggja aukið fjármagn til háskólastigsins og Rannsóknasjóðs Rannís. Þá hvet ég til þess að við fjárlagagerð sem og í allri stefnumótun verði sérstaklega hugað að doktorsnámi. Doktorsnemar eru rannsakendur og háskólakennarar framtíðarinnar. Okkar rannsóknarstarf er grundvöllur nýrrar þekkingar og nýsköpunar um ókomin ár – þekkingar og nýsköpunar sem kemur öllu samfélaginu til góða.Höfundur er doktorsnemi í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands, stjórnarmeðlimur Fedon – félags doktorsnema og nýdoktora við Háskóla Íslands, formaður Félags doktorsnema og nýdoktora við Hugvísindasvið Háskóla Íslands.Greinin er hluti af átaki Stúdentaráðs og Félags doktorsnema og nýdoktora við Háskóla Íslands í samstarfi við LÍS - Landssamtök íslenskra stúdenta vegna fjármögnunar háskólastigsins í aðdraganda Alþingiskosninga 2017. Kassamerki átaksins er #kjóstumenntun.Opinn fundur verður haldinn á Háskólatorgi í hádeginu í dag með frambjóðendum stjórnmálaflokka þar sem tækifæri gefst til að ræða málefni háskólanna og stúdenta. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kosningar 2017 Vísindi Tengdar fréttir Af áhuga sprettur árangur Eins og fram hefur komið á undanförnum dögum, í aðsendum greinum aðildarfélaga LÍS – Landssamtaka íslenskra stúdenta, hefur undirfjármögnun háskólanna víðtækari áhrif en bara á nemendur. 15. október 2017 09:00 Mennt er máttur Menntun eykur þróun og nýsköpun og býr þannig til fleiri tækifæri og starfsmöguleika. Menntun eykur gagnrýna hugsun og hjálpar einstaklingum að finna hvar áhugasvið þeirra liggur. 12. október 2017 09:42 Mannauður er undirstaða heilbrigðisþjónustu Undanfarin tvö ár hef ég setið í Stúdentaráði og þar fengið að kynnast mikilvægi hagsmunabaráttu og þess að nemendur hafi rödd. Það hefur verið magnað að fylgjast með hverju er hægt að hrinda í framkvæmd og hvað er hægt að hafa mikil áhrif. 4. október 2017 09:00 Sagan um Sigga Það var mánudagsmorgun þegar söguhetjan okkar, Siggi, gekk um háskólasvæðið á leið í sinn fyrsta tíma sem háskólanemi. 7. október 2017 09:00 Þú færð helmingi minna en á Norðurlöndunum Ávinningur háskólanáms er mikill fyrir einstaklinga og samfélagið í heild. Hann hefur bein áhrif á efnahag, gildi, þekkingu og viðhorf einstaklinga, samfélaginu til bóta. 10. október 2017 09:00 Háskólamenntun í heimabyggð Á Íslandi búum við það vel að eiga sjö starfandi háskóla, þar af eru fjórir háskólar starfandi utan höfuðborgarsvæðisins. 16. október 2017 09:00 Námsmenn erlendis og niðurskurðarhnífurinn Í þeim kosningum sem nú eru að ganga í garð er mikilvægt að setja menntun á dagskrá sem eitt af stóru kosningamálunum. Þótt tíminn sé naumur þangað til að gengið er að kjörkössunum er nauðsynlegt að vita hvaða sýn íslenskir stjórnmálamenn hafa varðandi Lánasjóð íslenskra námsmanna (LÍN) og námsmenn erlendis. 14. október 2017 09:00 Undirfjármögnun kemur í veg fyrir sérhæfingu nemenda Mikilvægt er að nemendur fái tækifæri til þess að sérhæfa sig á hinum ýmsu námsleiðum en ekki aðeins brot af því sem þeim þeir hafa hug á að sérhæfa sig í. 6. október 2017 09:00 Landsbyggðin án háskóla? Í síðasta mánuði og í raun allt síðasta árið hefur skólinn minn verið að halda upp á þrjátíu ára afmælið sitt. Á tímamótum sem þessum er algengt að fara í sjálfsskoðun, við þekkjum þetta öll þegar við höfum náð ákveðnum áföngum í lífi okkar, aldur, atburður, útskrift eða ákveðin upplifun. 9. október 2017 09:49 Aftur til fortíðar - undirfjármögnun hægir á framförum Ætli hinn almenni borgari átti sig á mikilvægi málefnisins? Það er undir okkur öllum komið að berjast fyrir réttindum sem eru jafnvel talin sjálfsögð, en eru það ekki. 11. október 2017 12:15 Skiptir þessi háskóli máli? Nú rúmum 100 árum eftir stofnun hefur starfsemi Háskóla Íslands vaxið og dafnað eins og sjá má á auknum nemendafjölda. 3. október 2017 09:00 Hugvísindi í hættu Háskóli Íslands er í fyrsta skipti í hópi 250 bestu háskóla heims á sviði hugvísinda samkvæmt nýjum lista Times Higher Education University Rankings 5. október 2017 09:39 Milli steins og sleggju Mikilvægi lista og annarra skapandi greina í samfélaginu er óumdeilanlegt. 17. október 2017 09:00 Eru verðmætin fólgin í náttúrunni? Á næstum árum og áratugum munu eiga sér stað miklar breytingar á náttúrunni vegna hlýnunar loftslags sem gerist nú á fordæmalausum hraða. 8. október 2017 09:00 Hvar viljum við standa í fjórðu iðnbyltingunni? Háskólar á Íslandi hafa verið undirfjármagnaðir í alltof langan tíma. Hagsmunasamtök og rektorar háskólanna hafa reynt að skapa umræðu um vandamálið undir myllumerkinu #HáskólaríHættu og nú #KjóstuMenntun. 13. október 2017 09:00 Mest lesið 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Halldór 24.10.26 Halldór Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Sjá meira
Framtíðin er björt í vísindastarfi og rannsóknum á Íslandi ef marka má fjölda skráðra doktorsnema við Háskóla Íslands. Mikillar grósku og vaxandi áhuga á rannsóknartengdu framhaldsnámi má merkja í aukningu doktorsnema við skólann. Þannig hefur skráðum doktorsnemum fjölgað úr 346 árið 2009 í 597 árið 2016 eða um 72,5%. Því miður hefur fjármagn til innlendra samkeppnissjóða og háskólans ekki fylgt þessari þróun. Í stefnu og aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs 2014–2016 var rætt fjálglega og af metnaði um öfluga nýliðun í vísindum og nýsköpun á Íslandi og var markið sett hátt; styrkja átti fjármögnun doktorsnáms með það að markmiði að frá og með árinu 2016 yrðu árlega 200 doktorsnemastöður að fullu fjármagnaðar úr innlendum samkeppnissjóðum. Þá var stefnan sett á að árið 2016 myndu 3% af vergri landsframleiðslu renna til vísinda og nýsköpunar. Því miður hefur hvorugt markmiðanna náðst. Í nýútkominni skýrslu Hagstofunnar kemur fram að í stað hækkunar í 3% af vergri landsframleiðslu hafa heildarútgjöld til rannsókna- og þróunarstarfs lækkað úr 2,17% árið 2015 í 2,08% á árinu 2016. Það jafngildir lækkun hlutfallslegra útgjalda um sem nemur 0,09% af vergri landsframleiðslu. Þegar horft er til samkeppnissjóða má sjá að langt er í land. Helsti samkeppnissjóður sem doktorsnemar á Íslandi geta sótt um í er rannsóknasjóður Rannís. Þegar skoðuð er úthlutun ársins 2016 má sjá að af 40 umsóknum um doktorsnemastyrki hlutu aðeins 12 styrk (27,3% árangurshlutfall). Auk þess eiga doktorsnemar þess kost að þiggja laun úr stærri styrkjum Rannsóknasjóðs Rannís, svokölluðum öndvegis- og verkefnastyrkjum, þá jafnan sem hluti af stærri rannsóknarverkefnum leiðbeinanda. Tölur um fjölda doktorsnema sem þiggja laun úr slíkum styrkjum eru ekki hluti af opinberum gögnum Rannís fyrir úthlutunarárið 2016. Til viðmiðunar má þó nefna að árið 2015 þáðu 59 doktorsnemar laun úr öndvegis- og verkefnastyrkjum og ólíklegt má telja að sá fjöldi hafi aukist þar sem fjármagn hefur ekki aukist að ráði. Sé Rannsóknasjóður Háskóla Íslands talinn með – en hann er aðeins opinn doktorsnemum við Háskóla Íslands – eykst fjöldi styrktra nema um 32. Umsækjendur í sjóðinn voru aftur á móti 146 og var árangurshlutfall því 21,9%. Ef tekið er mið af tölum um úthlutanir 2016 og um öndvegis- og verkefnastyrki frá 2015 er hér um að ræða 103 doktorsnemastöður. 97 stöður vantar upp á markmið stefnu og aðgerðaáætlunar Vísinda- og tækniráðs 2014–2016. Við þetta má bæta að árið 2017 fjölgaði umsóknum til Rannsóknasjóðs Rannís og árangurshlutfallið lækkaði úr 27,3% í 23,3% eða um sem nemur 14,6%. Í stefnu Vísinda- og tækniráðs fyrir árin 2017–2019 er markmið um 3% af vergri landsframleiðslu til vísinda og nýsköpunar á ný sett fram en í þetta sinn er gefið meira svigrúm til að ná þessu markmiði: sjö ár í stað tveggja, eða til ársins 2024. Þá er ekki minnst á doktorsnám eða styrktar doktorsnemastöður í stefnunni. Af ofangreindu má sjá að hættumerki eru á lofti, hlutfallsleg útgjöld af vergri landsframleiðslu til rannsóknar- og þróunarstarfs hafa lækkað um 0,09% milli ára og metnaður fyrir öflugu doktorsnámi, rannsóknum og nýsköpun virðist fara minnkandi ef marka má stefnu Vísinda- og tækniráðs fyrir árin 2017–2019. Mikilvægt er að bregðast hratt við ef ekki á að setja öflugt og ört vaxandi doktorsnám og rannsóknir og nýsköpun á Íslandi í hættu. Ég hvet frambjóðendur allra flokka til að setja fram sterka og metnaðarfulla framtíðarsýn um rannsóknir og nýsköpun og beita sér fyrir eflingu doktorsnáms með því að tryggja aukið fjármagn til háskólastigsins og Rannsóknasjóðs Rannís. Þá hvet ég til þess að við fjárlagagerð sem og í allri stefnumótun verði sérstaklega hugað að doktorsnámi. Doktorsnemar eru rannsakendur og háskólakennarar framtíðarinnar. Okkar rannsóknarstarf er grundvöllur nýrrar þekkingar og nýsköpunar um ókomin ár – þekkingar og nýsköpunar sem kemur öllu samfélaginu til góða.Höfundur er doktorsnemi í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands, stjórnarmeðlimur Fedon – félags doktorsnema og nýdoktora við Háskóla Íslands, formaður Félags doktorsnema og nýdoktora við Hugvísindasvið Háskóla Íslands.Greinin er hluti af átaki Stúdentaráðs og Félags doktorsnema og nýdoktora við Háskóla Íslands í samstarfi við LÍS - Landssamtök íslenskra stúdenta vegna fjármögnunar háskólastigsins í aðdraganda Alþingiskosninga 2017. Kassamerki átaksins er #kjóstumenntun.Opinn fundur verður haldinn á Háskólatorgi í hádeginu í dag með frambjóðendum stjórnmálaflokka þar sem tækifæri gefst til að ræða málefni háskólanna og stúdenta.
Af áhuga sprettur árangur Eins og fram hefur komið á undanförnum dögum, í aðsendum greinum aðildarfélaga LÍS – Landssamtaka íslenskra stúdenta, hefur undirfjármögnun háskólanna víðtækari áhrif en bara á nemendur. 15. október 2017 09:00
Mennt er máttur Menntun eykur þróun og nýsköpun og býr þannig til fleiri tækifæri og starfsmöguleika. Menntun eykur gagnrýna hugsun og hjálpar einstaklingum að finna hvar áhugasvið þeirra liggur. 12. október 2017 09:42
Mannauður er undirstaða heilbrigðisþjónustu Undanfarin tvö ár hef ég setið í Stúdentaráði og þar fengið að kynnast mikilvægi hagsmunabaráttu og þess að nemendur hafi rödd. Það hefur verið magnað að fylgjast með hverju er hægt að hrinda í framkvæmd og hvað er hægt að hafa mikil áhrif. 4. október 2017 09:00
Sagan um Sigga Það var mánudagsmorgun þegar söguhetjan okkar, Siggi, gekk um háskólasvæðið á leið í sinn fyrsta tíma sem háskólanemi. 7. október 2017 09:00
Þú færð helmingi minna en á Norðurlöndunum Ávinningur háskólanáms er mikill fyrir einstaklinga og samfélagið í heild. Hann hefur bein áhrif á efnahag, gildi, þekkingu og viðhorf einstaklinga, samfélaginu til bóta. 10. október 2017 09:00
Háskólamenntun í heimabyggð Á Íslandi búum við það vel að eiga sjö starfandi háskóla, þar af eru fjórir háskólar starfandi utan höfuðborgarsvæðisins. 16. október 2017 09:00
Námsmenn erlendis og niðurskurðarhnífurinn Í þeim kosningum sem nú eru að ganga í garð er mikilvægt að setja menntun á dagskrá sem eitt af stóru kosningamálunum. Þótt tíminn sé naumur þangað til að gengið er að kjörkössunum er nauðsynlegt að vita hvaða sýn íslenskir stjórnmálamenn hafa varðandi Lánasjóð íslenskra námsmanna (LÍN) og námsmenn erlendis. 14. október 2017 09:00
Undirfjármögnun kemur í veg fyrir sérhæfingu nemenda Mikilvægt er að nemendur fái tækifæri til þess að sérhæfa sig á hinum ýmsu námsleiðum en ekki aðeins brot af því sem þeim þeir hafa hug á að sérhæfa sig í. 6. október 2017 09:00
Landsbyggðin án háskóla? Í síðasta mánuði og í raun allt síðasta árið hefur skólinn minn verið að halda upp á þrjátíu ára afmælið sitt. Á tímamótum sem þessum er algengt að fara í sjálfsskoðun, við þekkjum þetta öll þegar við höfum náð ákveðnum áföngum í lífi okkar, aldur, atburður, útskrift eða ákveðin upplifun. 9. október 2017 09:49
Aftur til fortíðar - undirfjármögnun hægir á framförum Ætli hinn almenni borgari átti sig á mikilvægi málefnisins? Það er undir okkur öllum komið að berjast fyrir réttindum sem eru jafnvel talin sjálfsögð, en eru það ekki. 11. október 2017 12:15
Skiptir þessi háskóli máli? Nú rúmum 100 árum eftir stofnun hefur starfsemi Háskóla Íslands vaxið og dafnað eins og sjá má á auknum nemendafjölda. 3. október 2017 09:00
Hugvísindi í hættu Háskóli Íslands er í fyrsta skipti í hópi 250 bestu háskóla heims á sviði hugvísinda samkvæmt nýjum lista Times Higher Education University Rankings 5. október 2017 09:39
Milli steins og sleggju Mikilvægi lista og annarra skapandi greina í samfélaginu er óumdeilanlegt. 17. október 2017 09:00
Eru verðmætin fólgin í náttúrunni? Á næstum árum og áratugum munu eiga sér stað miklar breytingar á náttúrunni vegna hlýnunar loftslags sem gerist nú á fordæmalausum hraða. 8. október 2017 09:00
Hvar viljum við standa í fjórðu iðnbyltingunni? Háskólar á Íslandi hafa verið undirfjármagnaðir í alltof langan tíma. Hagsmunasamtök og rektorar háskólanna hafa reynt að skapa umræðu um vandamálið undir myllumerkinu #HáskólaríHættu og nú #KjóstuMenntun. 13. október 2017 09:00
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun