Mörgæsarungar sultu í hel í hrönnum Kjartan Kjartansson skrifar 16. október 2017 10:38 Dauður adelie-mörgæsarungu sem svalt í hel. Vísir/AFP
Aðeins tveir Adelie-mörgæsarungar komust á legg í þyrpingu tuga þúsunda þeirra á austanverðu Suðurskautslandinu. Sérfræðingar lýsa fengitímabili mörgæsanna í ár sem „stórslysi“. Óvenjumikill hafís nú í lok suðurskautsvetrar olli því að foreldrar unganna þurftu að ferðast hundrað kílómetrum lengri leið eftir fæði. Til að bæta gráu ofan á svart olli vætutíð því að ungarnir urðu blautir og kaldir, að því er segir í frétt The Guardian. Þegar franskir vísindamenn komu að þyrpingunni þar sem um 18.000 mörgæsir ólu unga á Petrels-eyju fundu þeir aðeins tvo unga á lífi. Þúsundir unga sem höfðu drepist úr hungri og egg sem höfðu ekki klakist út lágu þar eins og hráviði. Þetta er í annað skiptið á fjórum árum sem varp mörgæsanna verður fyrir meiriháttar skakkaföllum. Útbreiðsla hafíss við Suðurskautslandið hefur almennt verið óvenjulítil en svæðið í kringum mörgæsavarpið hefur hins vegar verið undantekning í ár. Alþjóðleg náttúruverndarsamtök hvetja til þess að stofnað verði friðland á Suðurskautslandinu til að vernda mörgæsirnar, að því er segir í frétt BBC. Þannig segja Alþjóðlegi dýralífssjóðurinn (WWF) að með því að banna veiðar á átu væri hægt að tryggja afkomu tegunda á Suðurskautslandinu, þar á meðal Adelie-mörgæsanna.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira