Nafnlaust símtal og rússneskur leyniþjónustumaður Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. október 2017 08:38 John F. Kennedy var skotinn er hann ók um í blæjubíl um Dallas þann 22. nóvember 1963. Vísir/Getty
Fréttamaður á vegum hinna bresku Cambridge Evening News fékk nafnlaust símtal árið 1963 þar sem honum var ráðlagt að hafa samband við sendiráð Bandaríkjanna þar sem nálgast mætti stórar fréttir. Um 25 mínútum síðar var John F. Kennedy, þáverandi Bandaríkjaforseti, skotinn til bana í Dallas. Þetta kemur fram í þeim 2900 gögnum um morðið á Kennedy sem gerð voru opinber í gær í samræmi við bandaríska upplýsingalöggjöf. Donald Trump Bandaríkjaforseti dró þó nokkuð í land frá því sem fyrst var talið, því hann hélt eftir um tíu prósentum þeirra skjala sem um var að ræða. Það gerði hann eftir þrýsting frá CIA, FBI og innanríkisráðuneytinu og ákvað að þau skjöl skyldu skoðuð betur og innan sex mánaða verði tekin ákvörðun um það sem eftir er. Lítið nýtt er að finna í skjalabunkanum sem nú er fram kominn og raunar hafði verið greint frá þeim flestum með einum eða öðrum hætti í gegnum árin. Samsæriskenningar hafa verið uppi allt frá því Kennedy var myrtur og víst er að aflétting leyndarinnar í gær mun lítið gera til að draga úr þeim. Árið 1992 samþykkti Bandaríkjaþing að allri leynd af öllum skjölum er varði morðið skyldi aflétt þann 26. október 2017, eða í gær. Trump sagði við tilefnið að hann hafi ekki átt neinn annan kost en að halda leynd áfram á hluta skjalanna, annars gæti það alvarleg og óafturkræf áhrif á öryggi ríkisins.Rannsóknin gríðarlega víðfemÍ gögnunum má til að mynda sjá minnisblað yfirmanns hjá alríkislögreglunnar þar sem fyrrgreinds símtals er getið. Hvorki fréttamaðurinn né innhringjandinn er nafngreindur á minnisblaðinu, sem dagsett er fjórum dögum eftir morðið. Er til marks um hversu víðfem rannsókn lögreglunnar á morðinu var, að mati útlneskra fjölmiðla. Í minnisblaðinu stendur: „Breska leyniþjónustan (MI-5) greinir frá því að klukkan 18:05 að staðartíma þann 22. nóvember hafi ónafngreindur einstaklingur í Cambridge, Englandi, hringt í háttsettan fréttamann hjá Cambridge News. Það eina sem innhringjandinn sagði var að fréttamaðurinn ætti að hafa samband við bandaríska sendiráðið í Lundúnum til að nálgast stórar frétt og lagði svo á. Hafði fréttamaðurinn svo samband við lögregluna og tilkynnti um símtalið, eftir að fréttir höfðu borist af dauða forsetans,“ eins og segir á vef Guardian.Þá greinir CNN frá minnisblaði fulltrúa CIA, sem ritað var daginn sem Kennedy var skotinn, þar sem segir frá símtali morðingjans, Lee Harvey Oswald, við fulltrúa rússnesku leyniþjónustunnar, KBG. Á hann að hafa rætt við fulltrúann, Valeriy Vladimirovich Kostikov, á „bjagaðri rússnesku.“ Var Oswald í Mexíkó en Kostikov starfaði í rússneska sendiráðinu í höfuðborg landsins. Talið er að Oswald hafi verið staddur þar í landi til að fá aðstoð við að útvega sér vegabréf eða vegabréfsáritun.
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Sjá meira