Enn blæs um Austfirði Stefán Ó. Jónsson skrifar 6. nóvember 2017 06:04 Veðrið hefur ekki alveg sagt skilið við Austurland. VÍSIR/VILHELM
Nú þegar mesta óveðrið er gengið niður er þó enn gul viðvörun í gildi á þremur landsvæðum. Spáð er suðaustanstormi, með vindhraða á bilinu 18 til 25 m/s, á Norðurlandi eystra og á Austurlandi að Glettingi. Þar geta vindhviður farið yfir 35 m/s og búast má við samgöngutruflunum á síðarnefnda svæðinu. Þá má búast við suðaustanhvassviðri eða -stormi á Austfjörðum og talsverðri snjókomu eða slyddu um tíma. Ætla má að úrkoman verði að rigningu þegar líða tekur á daginn. Þar má jafnframt búast við einhverjum samgöngutruflunum. Hiti verður á bilinu 0 til 7 stig, hlýjast syðst, en kólnar seinni partinn. Veðurstofan gerir ráð fyrir því að veðrið hafi að mestu gengið yfir upp úr hádegi. Þá er rafmagn jafnframt komið á alls staðar þar sem það fór af í gærkvöldi. Það snýst svo í norðan og norðvestan 8-13 m/s með éljum á morgun. Hiti kringum frostmark.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ þriðjudag:Norðvestlæg átt, víða 8-13 m/s og rigning eða slydda SA-til, en annars skúrir eða dálítil él. Hægari og úrkomulítið með kvöldinu. Hiti 0 til 5 stig S-til að deginum, en annars vægt frost. Á miðvikudag:Norðlæg átt, 10-15 m/s og slydda eða snjókoma á S-verðu landinu, en dálítil él fyrir norðan. Hiti kringum frostmark. Á fimmtudag:Norðvestlæg átt, strekkingur og él NA-til, annars mun hægari og stöku él, en léttskýjað SA-til. Frost 1 til 6 stig, en frostlaust við sjávarsíðuna yfir daginn. Á föstudag:Vestlæg átt með éljum, en bjartviðri eystra. Kólnandi veður. Á laugardag:Norðvestlæg átt og él, en léttskýjað SA-til. Kalt í veðri. Á sunnudag:Útlit fyrir hægan vind, bjartviðri og talsvert frost um land allt.
Veður Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Sjá meira