Samherji Birkis í aðalhlutverki er Ástralar tryggðu sér sæti á HM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. nóvember 2017 10:56 Mile Jedinak var öruggur á vítapunktinum. vísir/getty
Ástralía varð 31. liðið til að tryggja sér sæti á HM í Rússlandi þegar það vann 3-1 sigur á Hondúras í seinni umspilsleik liðanna í Sydney í morgun. Fyrri leiknum lyktaði með markalausu jafntefli.QUALIFIED!Congratulations,Australia!They're heading to their 5th #WorldCup! #WCQ pic.twitter.com/3FqkIXG4gI— #WCQ (@FIFAWorldCup) November 15, 2017 Mile Jedinak, samherji Birkis Bjarnasonar hjá Aston Villa, skoraði tvö mörk úr vítaspyrnum í leiknum í dag. Ástralar eru á leið á sitt fjórða heimsmeistaramót í röð og fimmta alls. Ástralía komst í 16-liða úrslit á HM 2006 en komst ekki upp úr sínum riðli á HM 1974, 2010 og 2014. Staðan í hálfleik í leiknum í dag var markalaus en Ástralía komst yfir á 54. mínútu þegar aukaspyrna Jedinaks fór af Maynor Figueroa og inn. Jedinak bætti öðru marki við úr víti á 72. mínútu og fimm mínútum fyrir leikslok skoraði hann aftur af vítapunktinum. Alberto Elis minnkaði muninn í uppbótartíma en það dugði ekki til. Lokatölur 3-1, Ástralíu í vil. Nú er bara eitt sæti laust á HM 2018. Það kemur í ljós í nótt hvort Perú eða Nýja-Sjáland fær síðasta farseðilinn til Rússlands.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram Sport Fleiri fréttir Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Sjá meira