Sluppu naumlega undan hraðbát á fullri ferð Kjartan Kjartansson skrifar 19. janúar 2018 12:24 Einn veiðimannanna birti myndband af atvikinu á vefsíðu sinni, Angling Oregon. Skjáskot/Youtube
Betur fór en á horfðist þegar hraðbátur skall á bát þriggja veiðimanna á fullri ferð í Oregon í Bandaríkjunum. Veiðimennirnir náðu að stökkva frá borði á síðustu stundu eftir að tilraunir þeirra til að ná athygli stjórnanda hraðbátsins báru engan árangur. Atvikið átti sér stað í Columbia-ánni síðasta sumar en myndband úr GoPro-myndavél af því hefur nýlega verið birt. Þá hefur einn veiðimannanna stefnt stjórnanda hraðbátsins. Allir veiðimennirnir þrír slösuðust. Stjórnandi hraðbátsins heitir Marlin Lee Larsen og er 75 ára gamall. Staðarblaðið The Oregonian segir að tengdasonur mannsins hafi varað hann við því að tala í farsíma þegar hann stýrði hraðbátnum, þar á meðal daginn sem áreksturinn átti sér stað. Larsen segir það „falsfréttir“ að hann hafi verið í símanum þegar hann sigldi á bát veiðimannanna. Einn þeirra hefur þó stefnt honum til hundruð þúsunda dollara skaðabóta og sakar hann um að hafa ekki verið með athyglina við stýrið, að sögn Washington Post. Larsen ber því við að hann hafi setið við stýrið og það hafi byrgt honum sýn. Hann notast við rafskutlu til að fara ferða sinna á landi. Larsen hefur verið ákærður fyrir afbrot, þar á meðal vítavert gáleysi við stjórn hraðbátsins, líkamsárás og fyrir að stefna lífi fólks í hættu með háskalegu athæfi.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira