Norður-Írar fá nokkrar vikur til að mynda stjórn áður en bresk stjórnvöld taka yfir Kjartan Kjartansson skrifar 18. janúar 2018 15:17 Lítið hefur verið um að vera í Stormont-kastala þar sem norður-írska þingið kemur alla jafnan saman síðasta árið. Vísir/AFP
Stærstu stjórnmálaflokkar Norður-Írlands hafa aðeins nokkrar vikur til að mynda saman stjórn áður en bresk stjórnvöld taka völdin í sínar hendur. Heimastjórnin og þingið hafa legið í lamasessi í heilt ár eftir að stjórnarsamstarfið sprakk í loft upp. Pattstaða hefur verið uppi í norður-írskum stjórnmálum frá því að Sinn Fein, flokkur þjóðernissinnaðra Íra, hætti stjórnarsamstarfi við Lýðræðislega sambandsflokkinn (DUP) í janúar í fyrra. Saman hafa flokkarnir farið með völdin á Norður-Írlandi frá 2007. Belfast-samkomulagið, friðarsamkomulagið sem batt enda á áratugalöng átök sem skrifað var undir árið 1998, kveður á um að flokkar kaþólikka og mómælenda þurfi að mynda heimastjórnina saman. Til stendur að hefja nýjar viðræður í næstu viku. Bæði Karen Bradley, nýskipaður ráðherra málefna Norður-Írlands í bresku ríkisstjórninni, og Simon Coveney, utanríkisráðherra Írlands, segja að aðeins séu nokkrar vikur til stefnu frekar en mánuðir til að ná samkomulagi. Bradley ætlar að gefa breska þinginu skýrslu um stöðu viðræðnanna 7. febrúar, að því er segir í frétt Reuters. „Án samkomulags stöndum við frammi fyrir pólitískum afleiðingum sem munu tákna verulegt bakslag í ferlinu sem hefur verið í gangi frá því að skrifað var undir Belfast-samkomulagið,“ segir Bradley. Bresk stjórnvöld settu Norður-Írum fjárlög í fyrra í fjarveru starfshæfs þing og framkvæmdavalds þar. Taki Bretar alfarið við völdum yfir Norður-Írlandi óttast sumir að það geti ógnað stöðugleika og friði sem tekist hefur að halda síðustu tvo áratugina.
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Sjá meira