Fjórir féllu í skærum Indverja og Pakistana í Kasmír Kjartan Kjartansson skrifar 15. janúar 2018 11:43 Maður sem tilheyrir vopnuðum sveitum sem styðja indverska herinn í Kasmírhéraði. Vísir/AFP
Indverjar og Pakistanar kenna hvor öðrum um að hafa brotið vopnahlé í Kasmírhéraði í dag. Fjórir pakistanskir hermenn féllu fyrir indverskum byssukúlum. Pakistanar fullyrða að þeir hafi fellt þrjá indverska hermenn á móti en Indverjar neita því. Kjarnorkuríkin tvö hafa karpað um Kasmírhérað í Himalajafjöllum um áratugaskeið en þau gera bæði tilkall til þess. Pakistanski herinn segir að hermenn á hans vegum hafi unnið að viðgerðum á fjarskiptalínum þegar indverskir hermenn hafi hafið skothríð á þá. Þeir hafi verið sín megin landamæra þar. Indverski herinn fullyrðir aftur á móti að það hafi verið pakistönsku hermennirnir sem hafi átt frumkvæðið að átökunum. Pakistanskir hermenn hafi fallið þegar þeir indversku svöruðu skothríðinni. Ekkert mannfall hafi orðið þeirra megin, að því er segir í frétt AP-fréttastofunnar. Þá felldu indverskir hermenn að minnsta kosti fimm uppreisnarmenn í skotbardaga eftir að þeir fóru inn á yfirráðasvæði Indverja í Kasmír. Uppreisnarmennirnir krefjast þess að héraðið verði sameinað undir stjórn annars hvors ríkisins eða að það verði sjálfstætt ríki. Indverjar saka Pakistana um að vopna og þjálfa uppreisnarmennina. Því hafa stjórnvöld í Pakistan neitað.
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira