Nígeríumenn undirbúa sig fyrir Ísland með því að mæta Englandi á Wembley Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. janúar 2018 11:30 John Obi Mikel, fyirrliði nígeríska landsliðsins, þekkir vel til í London. Vísir/Getty
Nígería verður með Íslandi í riðli á heimsmeistaramótinu í fótbolta í sumar og þjóðirnar munu mætast í öðrum leik sínum í Rússlandi. Þjóðirnar hafa báðar verið að leita sér að andstæðingum fyrir undirbúningsleiki fyrir keppnina og Nígeríumenn náðu samkomulagi um að mæta liðinu sem litla Ísland niðurlægði á EM í Frakklandi sumarið 2016. Nígeríumenn undirbúa sig nefnilega fyrir heimsmeistarakeppnia með því að mæta Englendingum á Wembley rétt áður en þeir fara til Rússlands. Enska knattspyrnusambandið tilkynnti um að lokaleikir enska landsliðsins fyrir heimsmeistaramótið verða á móti Nígeríu og Kosta Ríka eða þjóð frá Afríku og þjóð frá Mið-Ameríku. Enska landsliðið mætir einmitt þjóð frá Afríku (Túnis) og þjóð frá Mið-Ameríku (Panama) í sínum riðli en í þeim riðli er einnig Belgía. Nígeríska landsliðið kemur í heimsókn á Wembley 2. júní og fimm dögum síðar mætir enska landsliðið Kosta Ríka á Elland Road sem er heimavöllur Leeds United. Fyrsti leikur enska landsliðsins á HM er á móti Túnis 18. júní en fyrsti leikur Nígeríu á HM er á móti Króatíu tveimur dögum fyrr. Sama dag mætir íslenska landsliðið Lionel Messi og félögum í argentínska landsliðinu. Ekki er enn vitað hvaða þjóðum íslenska landsliðið mætir á Laugardalsvellinum í júní áður en strákarnir okkar fljúga til Rússlands. KSÍ segist vera að vinna í þeim málum.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Fótbolti Fleiri fréttir Malí tók stig af heimamönnum Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Sjá meira