Spillingardómur yfir fyrrverandi forseta Brasilíu staðfestur Kjartan Kjartansson skrifar 24. janúar 2018 20:28 Lula hefur verið talinn sigurstranglegastur fyrir forsetakosningar sem fara fram í október. Dómurinn setur strik í reikninginn fyrir hann. Vísir/AFP
Áfrýjunardómstóll í Brasilíu hefur staðfest dóm yfir Luiz Inacio Lula da Silva, fyrrverandi forseta, landsins vegna spillingar. Lula getur enn áfrýjað til æðri dómstigs en niðurstaðan þýðir líklega að hann verði ekki kjörgengur í forsetakosningum í október. Lula, sem gegndi embætti forseta frá 2003 til 2011, var sakfelldur fyrir að hafa þegið mútur í formi íbúðar við sjávarsíðuna frá verktakafyrirtæki. Á móti hafi fyrirtækið fengið samninga við Petrobras, ríkisolíufyrirtæki Brasilíu. Skoðanakannanir hafa bent til þess að Lula væri sigurstranglegasti frambjóðandinn í forsetakosningunum á þessu ári, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Sakfellingin þýðir hins vegar að hann getur ekki boðið sig fram. Lögmenn Lula fullyrða hins vegar að hann tapi ekki kjörgengi sínu fyrr en mál hans hefur farið alla leið í gegnum dómskerfið. Spillingarmálið sem Lula er flæktur í er það stærsta sinnar tegundar í Brasilíu. Alls hefur á níunda tug stjórnmálamanna og einstaklinga úr viðskiptalífinu verið bendlaður við það.
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Sjá meira