Herinn stýrir nú störfum lögreglu í Ríó de Janeiro Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 17. febrúar 2018 07:30 Herinn að störfum í Ríó de Janeiro í Brasilíu. Vísir/AFP
Ríkisstjórn Brasilíu skipaði hernum í gær að taka yfir stjórn löggæslu í Ríó de Janeiro. Vonast stjórnin til þess að þannig verði hægt að draga úr ofbeldi eiturlyfjagengja sem „hafa tekið öll völd“ í þessari tólf milljóna manna borg. Frá þessu sagði Michel Temer forseti í gær. Átta prósent fleiri morð voru framin í fyrra en árið 2016. Þá munar 26 prósentum á fjölda morða árið 2017 miðað við 2015 samkvæmt tölfræði frá ríkisstjórninni sem Reuters fjallaði um í gær. Brasilíski herinn hefur verið við störf í Ríó undanfarin ár til að berjast gegn gengjaofbeldi en sú breyting verður á að nú mun herinn alfarið stýra aðgerðum. Að því er Reuters greinir frá eru skotbardagar á milli skæruliða, glæpagengja og lögreglu daglegt brauð í fátækari hverfum borgarinnar. Þá hafi ofbeldið verið að breiðast út í ríkari hverfi undanfarið. Búist er við því að þessi ákvörðun ríkisstjórnarinnar valdi frestun á atkvæðagreiðslu þingsins um breytta eftirlaunalöggjöf. Sú löggjöf hefur verið helsta viðfangsefni ríkisstjórnar Temers en samkvæmt Reuters er ekki stuðningur við breytingarnar meðal almennings. Enn skortir Temer-stjórnina fjörutíu atkvæði í þinginu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira