Segja strákana okkar 19. besta liðið á HM Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. mars 2018 08:30 Strákarnir okkar eru sagðir reyna að fá stig í öllum leikjum á HM. Vísir/Anton
Frétta- og fótboltavefir út um allan heim keppast nú um að gefa út styrkleikaröðun (e. Power Rankings) fyrir HM 2018 sem hefst í Rússlandi um miðjan júní. Einn þeirra er ástralski fréttavefurinn ABC í ástralíu, en samkvæmt honum er íslenska landsliðið það nítjánda besta á HM þar sem strákarnir okkar verða í fyrsta sinn í sögunni. Þrjátíu og tvö lið taka þátt í HM og eru strákarnir okkar því aðeins fyrir neðan miðju en í sætinu á undan eru frændur vorir Danir og í sætinu á eftir eru Senegalar. Öll liðin sem eru með Íslandi í riðli eru sett fyrir ofan í styrkleikaröðun Ástralanna sem setja sitt eigið lið í 28. sæti af þjóðunum 32 sem hefja leik í Rússlandi. Argentína er í sjötta sæti, Króatía í sjöunda sæti og Nígería í 17. sæti þessari styrkleikaröðun en efstir eru Brassar og Þjóðverjar koma svo í öðru sætinu. Næstu tveir leikir íslenska liðsins eru vináttuleikir á móti Perú og Mexíkó í Bandaríkjunum en Perúmenn eru í 21. sæti þessa lista og Mexíkóar í 13. sæti. „Þrátt fyrir að vera lítil þjóð mun íslenska liðið reyna að fá stig í öllum þremur leikjunum með því að spila sterkan varnarleik og sækja hratt,“ segir í umsögn um strákana okkar. „Krúnudjásnið í liðinu er miðjumaðurinn Gylfi Sigurðsson sem spilar með Everton í ensku úrvalsdeildinni. Hann var lykilmaðurinn í frábærri undankeppni Íslands,“ segir um Ísland.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Fleiri fréttir Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Sjá meira