Hóta aðgerðum taki Bandaríkin þátt í heræfingu Suður Kóreu Birgir Olgeirsson skrifar 3. mars 2018 23:55 Kim Jong un leiðtogi Norður Kóreu. Vísir/Getty
Norður Kóreumenn hafa hótað að svara fyrir sig ef Bandaríkin munu halda sameiginlega heræfingu með Suður Kóreu. Greint er frá þessu á vef Reuters en þar segir að allar hugsanlegar viðræður við Bandaríkin séu út af borðin af hálfu Norður Kóreumanna verði af æfingunni. Þessar heræfingar eru fyrirhugaðar í apríl næstkomandi. „Ef Bandaríkin láta loks verða af sameiginlegri heræfingu og halda áfram viðskiptaþvingunum á Norður Kóreu, þá mun Norður Kórea svara Bandaríkjunum og munu bandarísk yfirvöld bera alla ábyrgð á þeim afleiðingum,“ hefur Reuters eftir fréttaveitu Norður Kóreu, KCNA. Þar er því haldið fram að þessar fyrirhugðu æfingar munu skaða allar tilraunir til sátta á Kóreuskaganum. 23. febrúar síðastliðinn kynntu Bandaríkin hertar viðskiptaþvinganir á Norður Kóreu með það að markmiði að fá yfirvöld í Norður Kóreu til að láta af kjarnorkuvopnatilraunum sínum. Yfirvöld í Norður Kóreu hafa gagnrýnt Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, harðlega vegna þessara þvinganna. Erindreki Norður Kóreu átti fund með forseta Suður Kóreu í kringum lokahátíð Vetrarólympíuleikanna þar í landi í síðasta á mánuði. Voru færðar fregnir af því að erindreki Norður Kóreu hefði tilkynnt á þeim fundi að Norður Kóreumenn væru reiðubúnir til viðræðna við Bandaríkin.
Mest lesið Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Erlent Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent Lítið breyst á fimmtán árum Innlent Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Miðvinstristjórn mynduð í Danmörku Erlent Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Innlent Fleiri fréttir Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Miðvinstristjórn mynduð í Danmörku Hafnar ásökunum um nýtt hernaðarbrölt Japana Styttir ferðina vegna veikinda krónprinsessunnar Mótmæltu flutningi á ebólusmituðum Bandaríkjamönnum til Kenía Umdeildum vinstrimönnum meinuð koman til Bretlands Evrópskir og bandarískir öfgamenn lögðu saman á ráðin um fjöldabrottvísanir Frakkar tóku skuggaskip á Atlantshafi Deila í dómsal um hvort réttarhöldin verði opin Íranar gera árásir á Kúveit og Ísraelar sækja dýpra inn í Líbanon Veita sextán milljarða evra til Ungverjalands Hundruð handtekin vegna átaka í kjölfar sigurs PSG SAS fellir niður allt flug til Grænlands Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Margrét Þórhildur útskrifuð af sjúkrahúsi Krabbameinssjúkir gætu sloppið við lyfjameðferð Fjórir menn komnir út úr hellinum í Laos Flugumferð stöðvuð í München vegna mögulegs drónaflugs Buckingham-höll hafi fengið tölvupósta um misferli Andrews fyrir sex árum Ísrael og Rússland á svörtum lista vegna kynferðisofbeldis í átökum Bannar ráðuneytinu að stofna skaðabótasjóðinn Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Funduðu enn og aftur um Grænland Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Fyrirskipar hernum að taka enn stærri hluta Gasa Ætla að setja Trump á 250 dollara seðil en þurfa að breyta lögum Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Tveir særðir eftir að rússneskur dróni lendir á fjölbýlishúsi í Rúmeníu Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Sjá meira