Fannst í ísilögðu stöðuvatni Stefán Ó. Jónsson skrifar 20. mars 2018 05:45 Alison Raspa sást síðast á veitingastað um 5 kílómetrum frá vatninu. PR
Lík ástralskrar konu fannst í ísilögðu stöðuvatni nærri vinsælum ferðamannastað í Kanada, næstum fjórum mánuðum eftir að hún hvarf. Tilkynnt var um hvarf konunnar, Alison Raspa, þann 23. nóvember síðastliðinn en síðast hafði sést til hennar þegar hún yfirgaf veitingastað í um fimm kílómetra fjarlægð frá vatninu. Vegfarandi tilkynnti konunglegu kanadísku riddaralögreglunni að hann hefði gengið fram á lík í vatninu, Alpha Lake, á föstudaginn síðastliðinn. Lögreglan hefur staðfest líkfundinn en dánarorsök liggur ekki fyrir á þessari stundu. Þó er talið ólíklegt að eitthvað saknæmt hafi átt sér satð. Eftir að Raspa yfirgaf veitingastaðinn steig hún upp í rútu en sendi vinum sínum skömmu síðar smáskilaboð þar sem hún tjáði þeim að hún væri týnd. Lögreglan hóf leit að Raspa í nóvember og fann síma hennar nærri vatninu, þar sem hún svo að lokum fannst, en hvorki tangur né tetur af eiganda hans. Það var svo ekki fyrr en á föstudaginn sem Raspa fannst svo, um fjórum mánuðum eftir að hún hvarf frá hinu vinsæla skíðasvæði við Alpha Lake. Hún var 25 ára gömul.
Kanada Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Sjá meira