Mótmælendum mætt með skothríð á Gazasvæðinu Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 31. mars 2018 20:40 Um sjötíu Palestínumenn sem mótmæltu ofbeldi og landtöku Ísraelsmanna særðust í dag á Gazasvæðinu í skothríð frá Ísraelskum hermönnum Vísir/afp
Um sjötíu Palestínumenn sem mótmæltu ofbeldi og landtöku Ísraelsmanna særðust í dag á Gazasvæðinu í skothríð frá Ísraelskum hermönnum að því er fram kemur á vef Reuters. Í gær féllu sextán Palestínumenn og fjórtán hundruð særðust í einni blóðugustu árás á mótmælendur á svæðinu á síðari árum. Þúsundir Palestínumanna komu saman í gær við landamæri Gaza og hugðust standa að friðsömum mótmælum í heilar sex vikur. Þúsundir fylktu liði á götum Gaza til að mótmæla ofbeldi Ísraelsmanna. Einhverjir mótmælenda köstuðu gróti og var því mætt með skothríð á mótmælendur og syrgjendur í heild. Forseti Palestínu, Mahmoud Abbas, sagði Ísraelsmenn bera fulla ábyrgð á ofbeldinu og forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu sagði Ísraelsmenn hafa verið að verja fullveldi sitt. Einn syrgjenda, Mohammad Sabbagh, greindi frá raunum sínum við fréttamann Guardian. Hann sagðist hafa séð tvítugan bróður sinn, Bader, skotinn í höfuðið í gær. „Hann var ekki að gera neitt af sér. Hann bara stóð þarna við hliðina á mér,“ segir Sabbagh. Palestínumenn hafa lýst yfir þjóðarsorg í dag í minningu þeirra sextán Palestínumanna sem féllu í átökunum í gær.
Tengdar fréttir Þjóðarsorg í Palestínu Þá hefur aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna kallað eftir óháðri rannsókn vegna dauðsfallanna í blóðugum átökum við landamærin. 31. mars 2018 13:18 Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Sjá meira
Þjóðarsorg í Palestínu Þá hefur aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna kallað eftir óháðri rannsókn vegna dauðsfallanna í blóðugum átökum við landamærin. 31. mars 2018 13:18