Oddvitaáskorunin: Tilfinnanlegur skortur á „Leeds-urum“ í Mosfellsbæ Samúel Karl Ólason skrifar 16. maí 2018 11:00 Sveinbjörn ásamt flokksmeðlimum sínum.
Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2018 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. Sveinbjörn Ottesen leiðir lista Framsóknarflokksins í Mosfellsbæ í sveitarstjórnarkosningunum. Sveinbjörn Ottesen er 58 ára fæddur í Reykjavík. Hann er giftur Olgu Björk Bragadóttur og eiga þau fjórar dætur og þrjár afa-stelpur. Sveinbjörn starfar sem deildarstjóri hjá Hagkaupum. Eftir nám í Hótel og Veitingaskólanum starfaði hann sem Veitingastjóri og verkstjóri í matvælaiðnaði. Sveinbjörn er samvinnu- og félagshyggjumaður mikil er setur manngildi ofar auðgildi. Hann hefur í áratug starfað fyrir Framsóknarflokkinn sem og að hafa setið í stjórn kjördæmisráðs og í miðstjórn flokksins. Áhugamál Sveinbjörns eru helst ferðalög og stangveiði. Hann fylgist líka með flestum íþróttum og þá líka hestaíþróttum. Á honum brennur mest að hafin verði bygging alvöru fjölnota íþróttahallar sem og að leggja sitt á vogarskálarnar til að gera Mosfellsbæ að fjölskylduvænu og grænu sveitarfélagi. Þá er það bara eitt til ráða og það er að setja X við B.Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi? Þingvellir.Hvar á Íslandi myndir þú helst vilja búa? (Fyrir utan eigið sveitarfélag) Höfn í Hornafirði. Þar er fallegt... og stutt í humar.Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Humar í hvítlauks-sméri.Hvaða mat ert þú bestu/ur að elda? Svínakótelettur í raspi.Uppáhalds „guilty pleasure“ lag? „More than a feeling“ með Boston.Hvað er það vandræðalegasta sem komið hefur fyrir þig, sem segja má frá? Þegar ég var að vinna sem þjónn og missti fat með rjómaís yfir 5 manna fjölskyldu.Draumaferðalagið? Cộng hòa xã hội chủ nghĩa Việt Nam.Trúir þú á líf eftir dauðann? Nei.Besti hrekkurinn sem þú hefur gert eða lent í? Hringdi í systur mina undir yfirskyni skoðanakannanar ...til að komast að því hvað hún kysi. Upp komst og hún varð alveg brjáluð og var við mig lengi.Hundar eða kettir? Eitt af hvoru hið minnsta.Uppáhalds „guilty pleasure“ bíómynd? Crying Game.Hvaða leikari ætti að leika þig í bíómynd? Bruce Willis.Í hvaða Game of Thrones ætt værir þú og af hverju? Game of...what? „In Daryl we trust“ (Walking Dead).Hefur þú verið tekin/n af lögreglunni? Já, Biggi lögga hefur ítrekað...tekið í höndina á mér.Uppáhalds tónlistarmaður? Megas.Uppáhalds bókin? Góði dátinn Sveik.Uppáhalds föstudagsdrykkur? Tvöfaldur Bacardi Gold í kók og bara ...EINN.. klaka.Uppáhalds þynnkumatur? Beikon og 3 egg.Þegar þú ferð í fríið, sólarströnd eða menning? Menning .... og kaldur á kantinum.Hefur þú pissað í sundlaug? Kemst ekki svo langt. Þegar ég heyri í rennandi vatni þarf ég alltaf að pissa.Hvaða lag kemur þér í gírinn? Wild Horses með Rolling Stones.Er eitthvað smávægilegt sem farið hefur í taugarnar á þér í þínu sveitarfélagi sem þú vilt laga? Í Mosfllsbæ er tilfinnanlegur skortur.... á Leeds-urum.Á að banna flugelda? Einn góðan veðurdag... en ekki alveg strax.Hvaða landsliðsmaður í knattspyrnu værir þú og af hverju? Emil Hallfreðsson enda báðir sterk staðföst sjarmatröll með frábæra hárgreiðslu.Oddvitaáskorunin er hluti af kosningaumfjöllun Vísis. Öllum oddvitum á landinu býðst að taka þátt. Áhugasamir oddvitar geta verið í sambandi við samuel@stod2.is.
Kosningar 2018 Oddvitaáskorunin Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Lífið samstarf Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Tíska og hönnun Fleiri fréttir Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Sjá meira