Einar Jónsson tekur við Gróttuliðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. maí 2018 10:12 Einar Jónsson. Vísir/Andri Marinó
Einar Jónsson þjálfar áfram í Olís deild karla í handbolta en hann hefur tekið við þjálfun meistaraflokks karla hjá Gróttu. Einar hætti með Stjörnuna í vor en tekur við Gróttuliðinu af Kára Garðarssyni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Gróttu. Stjörnumenn enduðu í sjöunda sæti undir stjórn Einars og komust í úrslitakeppnina þar sem liðið datt út á móti Selfossi. Gróttuliðið endaði tveimur sætum neðar í töflunni. Einar Jónsson hefur þjálfað meistaraflokka í þrettán ár og var um tíma við þjálfun í Noregi. Hann gerði Fram að Íslandsmeisturum 2013 og undir hans stjórn varð kvennalið Fram bikarmeistari tvö ár í röð, 2010-2011. Grótta hefur verið að missa frá sér leikmenn í sumar en nú eru þjálfaramálin komin á hreint og þá hefur Árni Benedikt Árnason einnig skrifað undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild Gróttu. Árni hefur spilað 200 leiki fyrir meistarflokk Gróttu og var fyrirliði Gróttu árin 2014-2017. Árni spilaði handbolta með Uppsala HK í Svíþjóð á seinasta tímabili. Gróttumenn boða frekari fréttir af leikmannamálum hjá karlaliði Gróttu á næstu dögum.
Olís-deild karla Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport Fleiri fréttir Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Sjá meira