Balotelli skoraði í fyrsta landsleiknum í fjögur ár Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. maí 2018 08:00 Mario Balotelli í leiknum í gær. Vísri/Getty
Ítalía vann í gærkvöldi 2-1 sigur á Sádí-Arabíu í vináttulandsleik en þetta var fyrsti leikur liðsins eftir að Roberto Mancini tók við því fyrr á árinu. Ítalía komst ekki á HM sem fer fram í Rússlandi í sumar sem frægt er og var Mancini fenginn í starf landsliðsþjálfara eftir að Gian Piero Ventura var látinn fara. Mancini, sem gerði Manchester City að Englandsmeisturm árið 2012, valdi Mario Balotelli í sinn fyrsta landsliðshóp og setti hann í byrjunarliðið í gær. Balotelli þakkaði fyrir sig með frábæru marki eftir einstaklingsframtak á 21. mínútu og kom Ítölum þar með á bragðið í leiknum. Balotelli spilaði síðast með Ítalíu á HM 2014 í Brasilíu þar sem hann skoraði annað marka Ítalíu í 2-1 sigri á Englandi í riðlakeppninni. Sem kunnugt er hætti Gianluigi Buffon að spila með ítalska landsliðinu eftir að því mistókst að komast á HM og stóð Gianluigi Donnarumma í markinu í fjarveru hans. Buffon spilaði alls 176 landsleiki fyrir Ítalíu. Sádí-Arabía er á meðal þátttökuliða á HM í sumar og mætir Rússlandi í opnunarleik mótsins þann 14. júní. Liðið er einnig með Úrúgvæ og Egyptalandi í riðli.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Fiorentina - Inter | Albert tekur á móti toppliðinu í síðasta leik fyrir sprautumeðferð Fótbolti Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Uppgjörið KR - Njarðvík 89-70 | KR vann toppslaginn gegn Njarðvík í Vesturbænum Körfubolti Fleiri fréttir Arteta sér ekkert eftir valinu: „Hver sem er getur gert mistök“ Real Madrid - Atlético Madrid | Nágrannaslagur í höfuðborginni Fiorentina - Inter | Albert tekur á móti toppliðinu í síðasta leik fyrir sprautumeðferð 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Hákon fagnaði dýrmætum sigri í Marseille O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Sjá meira