Húsráðendur bjóða í partí Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 9. júní 2018 08:00 Ásrún Emma og Alexander Roberts við Asparfell. Fréttablaðið/Ernir
Í íbúðum blokkarinnar í Asparfelli 2-12 býr mikill fjöldi fólks á öllum aldri, af mismunandi uppruna og kyni. Fjölskyldur jafnt sem einstaklingar, vinir og jafnvel vinnufélagar. Þau Alexander Roberts og Ásrún Magnúsdóttir stýra einum áhugaverðasta viðburði Listahátíðar í Reykjavík í ár og efna til blokkarpartís í samráði við nokkra húsráðendur í blokkinni sem ætla að opna heimili sitt fyrir gestum. „Við höfum verið að vinna að þessu verkefni í nokkra mánuði,“ segir Alexander. „Ferlið er frekar viðkvæmt, enda er ekki gefið að fólk vilji taka þátt og bjóða ókunnugum heim til sín,“ útskýrir Ásrún. „Við bönkuðum á hverja einustu hurð í öllum blokkunum og útskýrðum hugmyndina fyrir íbúum. Auðvitað voru ekki allir heima. En mér fannst þetta gefandi, að fá ræða við íbúa. Af hverju við viljum vinna verkefnið. Hvert markmiðið er,“ segir Alexander. Hvert er markmiðið? „Markmiðið er að færa fólk saman,“ segir Ásrún sem segir þau hafa verið einlæg við íbúana. „Við útskýrum bara hugmyndir okkar og það að við viljum koma til móts við íbúa. Verkefnið er ekki eftir okkar forskrift. Það verða ekki brjáluð danspartí hjá öllum íbúum. Þetta er alls konar,“ segir hún.María Gunnlaugsdóttir með plötur með tónlist sem er í uppáhaldi hjá henni.Vísir/Eyþór„Einn þátttakenda ætlar til dæmis að hlusta í rólegheitum á Leonard Cohen og segja fólki frá því hvers vegna hann er í uppáhaldi,“ segir Alexander. Dyraverðir munu leiðbeina gestum við inngang hvers stigagangs. Þá þarf fólk að skrá sig til þátttöku á heimasíðu Listahátíðar. „Það er hluti af verkinu að setja gesti í þær stellingar að bera ríka virðingu fyrir fólkinu sem það er að heimsækja. Þetta snýst fyrst og fremst um kærleika og traust,“ segir Ásrún. María Gunnlaugsdóttir, íbúi í Asparfelli 8, er ein þeirra sem taka þátt. Hún ætlar að halda hlustunarpartí fyrir gesti sem sækja hana heim. „Fyrst þegar ég var beðin um að taka þátt sagði ég nei og óskaði þeim bara góðs gengis. Flott hugmynd, hugsaði ég samt, og þetta var að naga mig,“ segir María sem langaði til að leggja eitthvað af mörkum. „Ég leiddi hugann að tónlistinni. Sem hefur bjargað sálarheill minni og margra annarra. Ég hlusta mikið á klassíska tónlist og ákvað á endanum að halda svolítið hlustunarpartí. Ég ætla að spila tónlist og ræða um minningar og viðburði sem tengjast henni í mínu lífi. Þetta eru hversdagslegar minningar og skrýtnar. Ekkert glamúrus og tengjast ekki Reykjavík. Ég er alin upp úti á landi. Ég er ekkert að velta því fyrir mér hvort tónlistin sem ég hlusta á þyki fín. Ég vel tónlistina algjörlega út frá eigin duttlungum og minningum,“ segir María sem segist hafa ákveðið að slá til eftir töluverðar vangaveltur.Sigurður yngri og Sigurður eldri bjóða upp í dans.Vísir/Eyþór„Listahátíð er fjarri okkur. Við heyrum um hana í útvarpinu, lesum um hana í blöðunum. Ég vildi tengja okkur við hátíðina sem búum hér. Við njótum öll lista og menningar. Og menningin, hún er líka hér,“ segir María. „Samfélagið hér í blokkinni er mjög fjölbreytt. Það er alls kyns fólk í öllum blokkunum hér í kring. Ég finn til dæmis alls konar matarilm um kvöldmatarleytið. Kannski eitthvað sem minnir á skötu, asískan ilm, mexíkóskan og afrískan. Allt blandast saman,“ segir hún og hlær. Feðgarnir Sigurður Sigurðsson og Sigurður Þór Sigurðsson ætla að bjóða upp á dans. „Ég ætla að dansa samkvæmisdansa fyrir þá gesti sem koma hingað,“ segir Sigurður yngri sem er atvinnudansari. Faðir hans kann taktana líka en segist ætla að vera í hlutverki gestgjafa og spjalla við gestina. „Ég ætla bara að vera á kantinum. Ég kann alveg að dansa líka, ég kenndi honum allt sem hann kann!“ segir hann og skellir upp úr. Sigurður yngri bregður svip. „Svo segir hann. Ég man nú ekkert eftir því!“ „Þetta var í hálfgerðum vitleysisgangi sem við ákváðum að taka þátt, þetta er svolítið að hellast yfir mig í dag,“ segir Sigurður eldri í léttum dúr.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Fleiri fréttir Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum Sjá meira