Enginn Íslandsmeistari í landsliðshópi Guðmundar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. júní 2018 13:56 Eyjamenn lyfta Íslandsmeistarabikarnum á dögunum. vísir/andri marinó
Eyjamenn unnu þrefalt í handboltanum vetur og fóru alla leið í undanúrslitin í Evrópukeppninni en enginn leikmaður liðsins er samt í A-landsliðinu sem er að fara að mæta Litháen í umspilsleikjum um sæti á HM 2019. Íslenska landsliðið spilar tvo leiki við Litháen í umspili um sæti í lokaúrslitum HM sem fara fram í Þýskalandi og Danmörku í upphafi næsta árs. Tveir Eyjamenn voru í æfingahópnum en duttu báðir út. Markvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson er meiddur og hornamaðurinn Theodór Sigurbjörnsson kemst ekki í hópinn. Þrír markahæstu leikmenn Eyjaliðsins í úrslitakeppninni í ár, Sigurbergur Sveinsson (40 mörk í 9 leikjum), Róbert Aron Hostert (38 mörk í 9 leikjum) og Kári Kristján Kristjánsson (36 mörk í 9 leikjum) voru ekki valdir í 30 manna æfingahóp. Fjórir leikmenn úr Olís deild karla komast í hópinn en það eru markverðirnir Ágúst Elí Björgvinsson (FH) og Björgvin Páll Gústavsson (Haukar), vinstri skyttan Daníel Þór Ingason (Haukar) og Selfyssingurinn Elvar Örn Jónsson. Haukarnir eiga tvo leikmenn í hópnum en ÍBV vann Hauka einmitt 3-0 í undanúrslitum úrslitakeppninnar á dögunum.16 manna hópurinn er klár fyrir leikinn gegn Litháen í Vilnius.Blaðamannafundinn má sjá hér:https://t.co/T8wZZS2qDeLitháen – Ísland beint @ruvithrottir Föstudag 16:00ÁFRAM ÍSLAND! #strakarnirokkar #handbolti pic.twitter.com/K9RzZRj7F9— HSÍ (@HSI_Iceland) June 6, 2018
HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira