Gaf besta vininum sínum rautt spjald og bauð honum síðan í afmælið sitt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. júní 2018 11:30
Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson var heiðusrsgestur í Pepsi-mörkunum í gær þegar Hörður Magnússon og félagar gerðu upp sjöundu umferð Pepsi deildar karla. Hörður byrjaði á því að sýna myndband frá því þegar Hannes fékk dæmda á sig vítaspyrnu og að auki rautt spjald í leik með KR í ágúst sumarið 2003. Dómarinn sem rak hann þarna útaf stóð einmitt hjá honum í settinu því Gunnar Jarl Jónsson er einn af sérfræðingum Pepsi-markanna í sumar. „Hér er Gunnar Jarl Jónsson að dæma og hann rekur einn besta vininn sinn útaf. Hvernig gastu gert honum þetta Gunnar,“ spurði Hörður þegar hann kynnti inn myndbrotið. „Við áttum gott spjall um þetta á bílastæðinu út í KR, ég, Hannes og Gummi Hreiðars. Hann var rosalega illur og var ótrúlega ósáttur. Hann gat ekki verið verri en það að hann var svona mjög sáttur eiginlega í lokin,“ sagði Gunnar Jarl. „Bauðstu mér ekki í afmælið þitt í kjölfarið,“ skaut Hannes inn í. „Ég bauð honum í kjölfarið í þrítugsafmælið mitt sem var þarna tveimur vikum seinna,“ sagði Gunnar Jarl. „Þetta var óþarfi hjá þér, þú gast alveg sleppt þessu,“ sagði Hannes ekki alveg búinn að sætta sig við þetta rauða spjald. „Reglan í dag er þannig að þetta væri ekki rautt spjald,“ sagði Gunnar. „Fáránleg regla líka,“ svaraði Hannes. Það má sjá þetta myndbrot og viðbrögð strákanna í settinum í spilaranum hér fyrir ofan.
HM 2018 í Rússlandi Pepsi Max-deild karla Mest lesið Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Körfubolti Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Körfubolti Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Handbolti Magnús kominn heim af sjúkrahúsi en tímabilinu líklega lokið Handbolti Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Handbolti Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Fleiri fréttir Þróttur og HK á toppnum Sjáðu mörkin úr endurkomunni í Eyjum Skellt í lás eftir afhroðið Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Uppgjörið: ÍBV - Víkingur Reykjavík 3-2 | Nýliðarnir með endurkomusigur Gíraður í Reykjavíkurslag: „Hlaupum á Val á hundrað kílómetra hraða“ Sjáðu mörkin: Fyrsti sigur nýliðanna, endurkoma Þróttara og Stjarnan skein skært Skýr í svörum aðspurður um möguleika KR á Íslandsmeistaratitli Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Sagan með Val en KR á flugi Uppgjörið: Þróttur R. - FH 2-1 | Sætur sigur Þróttara Gætu endað í þyrlu til Eyja Eiður og Arnór spili ekki á laugardaginn Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Annasamt á skrifstofum Keflavíkur: Conteh kominn að láni og Daníel Guðni verður áfram „Við hlógum bara að því“ Anton Ari í Kópavogi til 2028 Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Arnór Ingvi ætti að vera klár fyrir Valsleikinn Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Sjáðu öll 26 mörkin úr Bestu deildinni í gær Sölvi Geir: Fengum hann til félagsins út af þessu FH spilaði í blárri Henson treyju: „Við vildum ekki fara bara í einhvern lit“ Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Stjarnan - Valur 2-4 | Stórskemmtun í suddanum á Samsung KR - FH 4-2 | Frábærir KR-ingar Sjá meira