Messi skaut oftar á markið en okkar menn til samans en skoraði ekki Kolbeinn Tumi Daðason á Spartak-leikvanginum skrifar 16. júní 2018 15:19 Lionel Messi svekktur í leikslok. Hann var líklega meira með boltann en íslenska landsliðið til samans en tókst ekki að skora. Vísir/Getty
Það er áhugavert að gera upp magnað jafntefli Íslands við Argentínu með því að skoða opinbera tölfræði FIFA eftir leik. Þar kemur margt áhugavert í ljós fyrir þá sem hafa áhuga á að pæla í tölunum. Argentína var með boltann 73% í leiknum en okkar menn 27%. Íslenska liðið var með boltann í 17 mínútur en Argentína 45. Heimsmeistararnir tvöföldu skutu 26 sinnum á markið og hittu sjö sinnum. Íslenska liðið skaut níu sinnum og hitti þrisvar á markið, eða jafnoft og Lionel Messi. Töframaðurinn örvfætti lét vaða ellefu sinnum en tókst ekki að skora. Ekki einu sinni úr víti sem Hannes Þór Halldórsson varði. Íslendingar brutu 15 sinnum af sér en Argentínumenn 10 sinnum. Enginn fékk gult spjald í leiknum. Javier Mascherano var brotakóngur leiksins en sex sinnum var dæmd aukaspyrna á hann. Birkir Bjarnason braut oftast af sér í íslenska liðinu eða fjórum sinnum. Argentína fékk 10 hornspyrnur á móti tveimur hjá Íslandi. Þrisvar skutu Argentínumenn úr aukaspyrnum en Íslendingar aldrei. Að lokum, Ísland skoraði eitt mark og Argentína eitt. Liðin fá eitt stig út úr leiknum. Eitthvað sem Argentínumenn hata en Íslendingar elska.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Báðir þurfa bikar Enski boltinn „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Handbolti Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Enski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Fleiri fréttir Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti Veik byrjun Vålerenga Bras á gestunum og Brighton í Meistaradeildarbaráttu Ekitiké fór grátandi af velli „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sjáðu mörkin og vítadómana sem United-menn eru æfir yfir Hér eftir verður það refsivert að smygla sér inn á leiki Vilja núna taka fimmtíu ára gamlan titil af Marokkó „Annaðhvort eru bæði brotin víti eða hvorugt“ Maguire fékk rautt og United missti tvívegis niður forystuna Arteta gaf ekkert upp um þátttöku Ödegaard í úrslitaleiknum Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld Stefán Teitur lagði upp sigurmarkið Sjá meira