Skoðun

Hvernig á að bregðast við?

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar
Þeir Íslendingar sem héldu til Rússlands til að styðja landsliðið á HM skemmtu sér konunglega. Ráðherrar og forseti Íslands voru fjarri góðu gamni, en ríkisstjórnin hafði látið þau boð út ganga að hún myndi ekki senda fulltrúa sína á mótið vegna taugaeitursárásar á Skripal-feðginin í Salisbury í Bretlandi sem Pútín er kennt um. Þessi ákvörðun vakti enga sérstaka athygli landsmanna, fyrir utan megna óánægju hlustenda Útvarps Sögu sem í símatímum fordæmdu fjarveru forsetans á mótinu og sögðu hann kúgaðan af illa innrættri og vonlausri ríkisstjórn. Þeir kvöddu síðan með fullyrðingu um að Ólafur Ragnar Grímsson hefði ekki látið bjóða sér slíka meðferð heldur tekið fyrsta flug til Rússlands.

Forsetafrúin fór til Rússlands til að horfa á fótbolta og vel má túlka þá ferð sem svo að forsetinn hafi ekki með öllu verið sáttur við ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Borgarstjórinn Dagur B. Eggertsson mætti einnig galvaskur á leiki íslenska liðsins. Hann hefur örugglega farið á eigin kostnað sem prívat manneskja en um leið getur hann ekki alveg hrist af sér opinberu persónuna. Það hefði verið fullkomin hræsni af hans hálfu að mæta til Rússlands ef hann styddi í hjarta sínu ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Sennilega er hann á þeirri skoðun að í þessu tilviki hafi verið hæpið að blanda saman íþróttum og pólitík.

Samband pólitíkur og íþrótta er flókið og stundum er eins og ekki sé til neitt rétt svar. Á sínum tíma hefði til dæmis mátt færa mjög gild rök fyrir því að ekki væri forsvaranlegt að senda íþróttafólk á Ólympíuleika Hitlers í Berlín árið 1936. Rökin gegn þeirri skoðun eru að þar var unnið afrek sem komst í heimssöguna þegar blökkumanninum Jesse Owens tókst með sigrum sínum að afsanna kenningar nasista um yfirburði hins aríska kynstofns.

Þegar stjórnmálamenn byrja að taka ákvarðanir um að senda ekki fulltrúa á íþróttaviðburði í löndum þar sem stjórnvöld fremja fólskuverk þá er erfitt að draga mörkin. Hinn siðferðilegi vandi er æpandi þegar kemur að heimsmeistarakeppninni í fótbolta í Katar árið 2022. Íslendingar eru bjartsýnisfólk og gera vitanlega ráð fyrir þátttöku landsliðs síns í landi þar sem ýmislegt bjátar á.

Í Katar er þegar byrjað að vinna að uppbyggingu leikvanga fyrir HM og yfirgnæfandi hluti þeirra sem koma að því verki eru far­and­verka­menn frá Suður-Asíu. Fullyrt er að hundruð þeirra hafi þegar látið lífið á vinnusvæðinu. Shar­an Burrow, formaður Alþjóðasam­bands verka­lýðsfé­laga, segir að svo geti farið að allt að fjögur þúsund verkamenn hafi látið lífið vegna bágra aðstæðna áður en heimsmeistaramótið hefst.

Íslenskir ráðamenn ákváðu að stilla sér upp við hlið vestrænna þjóða og mótmæla árásinni á Skripal-feðginin í Salisbury með því að senda ekki fulltrúa sína á HM í Rússlandi. Nú vill svo til að Skripal-feðginin eru á lífi og sögð við góða heilsu meðan nokkrar þúsundir bíða dauðans í Katar. Það er fórnin sem er færð til að halda HM í Katar. Spurningin sem bíður heimsbyggðarinnar er: Hvernig á að bregðast við?




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×