Fara Xhaka og Shaqiri í bann fyrir arnarfagnið? Anton Ingi Leifsson skrifar 24. júní 2018 12:00 Xhaka fagnar marki sínu á föstudaginn. vísir/getty
FIFA er byrjað að rannsaka fögn Granit Xhaka og Xherdan Shaqiri, leikmanna Sviss, er þeir skoruðu gegn Serbíu í 2-1 sigri á HM á föstudaginn. Báðir leikmennirnir eru frá Kósóvó en Serbar herjuðu á landið árið 1999 í mikilli hernaðaraðgerð. Þeir eiga einnig fjölskyldutengsl til Albaníu og voru lengi vel með albanskt ríkisfang. Eftir að þeir skoruðu á föstudaginn fögnuðu þeir með að búa til arnarmerki en þjóðfáni Albaníu er með þessum tiltekna erni. Þar sýndu þeir sínu heimalandi stuðning. Stuðningsmenn Serbíu tóku afar illa í þetta og bauluðu vel á báða Xhaka og Shaqiri en það er ljóst að þetta þýddi mikið fyrir þá því fögnuðurinn var mikill. „Þetta eru bara tilfinningar. Ég er mjög ánægður með að skora. Það er ekki meira en það. Ég held að við þurfum ekki að tala meira um þetta núna,” sagði Shaqiri en FIFA hefur tekið annan pól í hæðina. Þeir eru byrjaðir að rannsaka fögn Xhaka og Shaqiri en einnig eru stuðningsmenn Serba til skoðunar sem og þjálfari Serba, Mladen Krstjaic, sem lét ljót ummæli falla eftir leikinn beint að Shaqiri og Xhaka.
HM 2018 í Rússlandi Tengdar fréttir Shaqiri tryggði Svisslendingum endurkomusigur á 90. mínútu Svisslendingar eru í góðum málum í E-riðli eftir 2-1 endurkomusigur á Serbum á HM í fótbolta í Rússlandi í kvöld. 22. júní 2018 20:00 Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna Messi og Suárez í stuði Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Aflýstu leik vegna skutlukasts „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ „Þetta var alltaf mitt mark“ „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Kristian Nökkvi og félagar nokkrum stigum frá toppnum Sigurganga Börsunga heldur áfram Svekkjandi tíu manna janftefli hjá Frey „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Fiskaði rautt spjald í sigri Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Henderson í stuði í stórsigri Mikael lagði upp og meiddist en Logi í basli gegn Salah Magnað mark dugði fyrir sigri „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Sjá meira
Shaqiri tryggði Svisslendingum endurkomusigur á 90. mínútu Svisslendingar eru í góðum málum í E-riðli eftir 2-1 endurkomusigur á Serbum á HM í fótbolta í Rússlandi í kvöld. 22. júní 2018 20:00