Þrjótar segjast búa yfir myndböndum af Íslendingum horfa á klám Samúel Karl Ólason skrifar 16. júlí 2018 19:58 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við svikapóstum þar sem tölvuþrjótar segjast búa yfir myndböndum af Íslendingum skoða klám.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við svikapóstum þar sem tölvuþrjótar segjast búa yfir myndböndum af fólki skoða klám. Þrjótarnir krefjast greiðslu fyrir að birta myndböndin ekki á netinu. Lögreglan, sem segir fjölda Íslendinga hafa tilkynnt þessa pósta, segir þó að um fjölpósta sé að ræða og ekkert bendi til þess að þeir búi í raun yfir því sem þeir hóta. Umræddir þrjótar segjast hafa komist yfir lykilorð notenda og að þeir hafi sýkt tölvu viðkomandi vírus þegar ákveðin klámsíða hafi verið heimsótt. Þannig hafi þeir geta tekið myndband af fólki og er gefið í skyn að viðkomandi hafi verið að eiga við sig í myndbandinu. Þeir hafa einnig birt lykilorð fólks í einhverjum tilfellum. Lögreglan segir þessa pósta hafa verið senda á póstföng sem gangi kaupum og sölum á vefnum. „Hinsvegar virðast þessi skeyti vera fjölpóstar. Ekkert gefur til kynna að þeir sem senda póstinn hafi einhver myndskeið eða hafi í raun gert neitt af því sem þeir hóta. Þeir hafa í sumum tilvikum komist yfir einhverja skrá með lykilorðum og nota það til að ljá hótun sinni meira vægi, en það virðist vera allt sem þeir hafa. Þetta form er kallað vefveiðar og er vel þekkt, fjölpóstur er sendur á marga og reynt að skapa hræðslu og stress til að fá brotaþola til að senda peninga.“ Þá mælir lögreglan með því að fólk hylji vefmyndavél sína þegar hún sé ekki í notkun og kanni hvort að tölvupóstföng og notendanöfn þeirra hafi lekið. Það sé hægt að gera á haveibeenpwned.com.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira