Ólafía Þórunn einu höggi undir pari eftir fyrsta hring Arnar Geir Halldórsson skrifar 13. júlí 2018 08:00 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, er á einu höggi undir pari eftir fyrsta hring á Marathon Classic mótinu sem hófst í Ohio í Bandaríkjunum í gær. Mótið er hluti af LPGA mótaröðinni. Ólafía fékk tvo fugla á fyrsta hring en einn skolla og paraði hinar fimmtán holurnar sem skilar henni jafnri í 43.sæti eftir fyrsta daginn. Annar hringur verður leikinn í dag en 70 efstu kylfingarnir að honum loknum komast áfram og leiki seinni tvo dagana. Hin tælenska Thidapa Suwannapura trónir á toppnum eftir fyrsta hring á sex höggum undir pari en í humátt á eftir henni koma einir sjö kylfingar á fimm höggum undir pari. Sýnt er frá mótinu á Stöð 2 Sport 4 og hefst útsending dagsins klukkan 20:30 í kvöld.Skorkort fyrsta hrings ÓlafíuSkjáskot/LPGA
Golf Mest lesið Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Enski boltinn Álftanes - Tindastóll 78-137 | Ótrúleg sýning gestanna Körfubolti Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Íslenski boltinn Kærasta Haaland hefur fengið nóg Enski boltinn Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Íslenski boltinn Ólympíumeistari í bráðaaðgerð á hálsi Sport ÓL í hættu: Hólmfríður Dóra brotnaði á æfingu Sport Sjáðu mark Kristins frá miðju og hin sem skiluðu sextíu milljónum í kassann Fótbolti Freyr ekki hrifinn af „hrokafullum dómara“ Fótbolti Slot fundar með Salah í dag: „Mun ákvarða hver næstu skref verða“ Enski boltinn Fleiri fréttir Áminntir fyrir að drekka einn bjór: Sagðir drukknir og hafa tekið „Happy Gilmore-sveiflu“ Ástand í Noregi: Hátt upp í fimm þúsund kylfingar án klúbbs Bananahýði gerði Rory McIlroy erfitt fyrir Dáður en umdeildur kylfingur látinn Gríðarleg fjölgun kylfinga: „Aðstaðan sprungin í höfuðborginni“ Barnabarn Donalds Trump: „Ég sló mörg góð högg, bara á ranga staði“ Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Sjá meira